Breski lúxusbílaframleiðandinn Rolls-Royce hefur kynnt nýjan tveggja sæta rafmagnsblæjubíl sem ber heitið Project Nightingale. Á vef BBC segir að fyrirtækið hyggist framleiða aðeins 100 eintök af bílnum. Bílarnir verða framleiddir í höfuðstöðvum Rolls-Royce í Goodwood í West-Sussex og er búist við fyrstu afhendingu árið 2028. Project Nightingale verður um 5,76 metrar á lengd og í svipaðri stærð og flaggskip bílaframleiðandans, Phantom. Hönnunin einkennist af löngu húddi og tundurskeytalögun sem vísar til tilraunabíla Rolls-Royce frá 3. áratug síðustu aldar. Sjá einnig Öflugasti Rollsinn frá upphafi Chris Brownridge, forstjóri Rolls-Royce Motor Cars, segir verkefnið vera svar við kröfum hörðustu viðskiptavina félagsins. Rolls-Royce hefur ekki gefið upp verð á bílnum en hann verður settur í svipaðan flokk og Private Commission og Coachbuild-bílar fyrirtækisins. Slíkir bílar hafa kostað allt frá 83 milljónum króna til 3,3 milljarða króna.