- What: Release of a new book
- Impact: Literary community in Iceland
Menning | Bækur | mbl | 12.4.2026 | 21:30 Allar stjörnur slokkna á himninum Árni Matthíasson [email protected] Setja bókamerki Seint á síðasta ári kom út skáldsagan Heiðmyrkur eftir Guðmund Inga Markússon, þriðja og síðasta bókin í furðusagnaþríleiknum Skuggarbrúin, en áður voru konar Skuggabrúin (2022) og Svikabirta (2023). Stjarneyga fólkið og útdauði mannkyns Guðmundur Ingi er ekki bara rithöfundur heldur er hann einnig tónlistarmaður, var og er til að mynda helmingur tvíeykisins Reptilicus, sem starfað hefur frá lokum níunda áratugar síðustu aldar, og einnig menntaður trúarbragðafræðingur. Hann segir svo frá að það hafi lengi blundað í honum sú hugmynd að skrifa skáldverk Guðmundur Ingi segir að hafi lengi langað til að skrifa skáldverk og að þríleikurinn um Skuggabrúna sé þriðja alvarlega tilraunin sem hann gerði til að skrifa skáldsögu og fyrsta tilraunin sem hann var sáttur við. „Ég gerði alvarlega tilraun upp úr aldamótum, skrifaði 100 blaðsíður inn í vísindaskáldsögu og skrifaði svo barnabók í kringum hrunið en var ekki sáttur við útkomuna. Hugmyndin að Skuggabrúnni kviknaði svo upp úr aldamótum þegar ég fór til Svalbarða árið 2010, sem er náttúrulega eins og að koma á hjara veraldar, fannst mér ég vera að koma inn á sögusviðið og að ég þyrfti að fara að byrja á verkinu sem ég gerði um áramótin 2012, en svo tók það mig ár ákveða hvort ég ætti að skrifa í nútíð eða þátíð þannig að ég byrjaði ekki af alvöru fyrr en 2013.“ Kveikjuna að þríleiknum segir Guðmundur Ingi hafa verið viðtal sem hann sá við eðlisfræðing um rannsóknir sem benda til þess að alheimurinn sé þenjast út með sívaxandi hraða. „Hann sagði, sem sagt, að ef þú gætir legið nógu lengi og horft til himins þá myndir þú sjá allar stjörnur slokkna á himninum því fjarlægðirnar verði svo miklar að ljósið komist ekki lengur á milli. Ég sá mjög sterkt fyrir mér einhverjar verur liggja og sjá stjörnurnar hverfa. Líka að þar sem sólin væri náttúrulega ekki lengur hlýti að vera kalt og því væru það verur sem hefðu þróast til þess að lifa við þau skilyrði, einhvers konar mannverur sem yrðu vitni að þessu.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég er á einhverju rófi“ Fjölskyldan myrt með eitri Picasso-verk fyrir 14 þúsund krónur Enginn óður til gjöreyðingar Eigum við að kalla okkur Iron Maiden? Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Vernda Eyjalögin Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Sorgin er allt um kring Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað „Ég er á einhverju rófi“ Sorgin er allt um kring Vernda Eyjalögin Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Fjörið hefst í kvöld „How do you like Iceland?“ Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Björgvin Halldórsson látinn Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað „Ég er á einhverju rófi“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forseti Íslands minnist Björgvins Áhugaverð viðtöl Menning Varð óvart að söngleik Menning „Þau voru svolítið hneyksluð í fyrstu“ Menning Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Menning Upplifði hryllingstilfinningu Menning Allt yfirborðskenndara í LA Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég er á einhverju rófi“ Fjölskyldan myrt með eitri Picasso-verk fyrir 14 þúsund krónur Enginn óður til gjöreyðingar Eigum við að kalla okkur Iron Maiden? Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað Vernda Eyjalögin Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Sorgin er allt um kring Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað „Ég er á einhverju rófi“ Sorgin er allt um kring Vernda Eyjalögin Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki Fjörið hefst í kvöld „How do you like Iceland?“ Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Björgvin Halldórsson látinn Kóngurinn græddi mest á stríðinu Björgvin Halldórsson látinn Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Leyndarmálinu loks verið uppljóstrað „Ég er á einhverju rófi“ „Stórt skarð höggvið í hafnfirskt samfélag“ Minnast Björgvins: „Fyrir þetta allt þökkum við“ Forseti Íslands minnist Björgvins Áhugaverð viðtöl Menning Upplifði hryllingstilfinningu Menning Fann ung að hún væri öðruvísi í útliti Menning „Þau voru svolítið hneyksluð í fyrstu“ Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning Yuja Wang í töfraheimi Gabríelu