Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Inn­leiða reglur ESB án at­kvæða­greiðslna

Read Full Article →

Breska ríkisstjórnin undir forystu Keir Starmer hyggst setja lög sem myndu heimila Bretum að taka upp nýjar reglur Evrópusambandsins án þess að halda atkvæðagreiðslu um hverja og eina reglu frá breska þinginu. Á vef BBC segir að markmiðið sé að auðvelda Bretlandi að samræmast nýjum reglum sem nauðsynlegar séu til að gera nýja samninga, til að mynda á sviði matvælastaðla. Stjórnvöld segja að þingmenn muni áfram sinna eftirlitshlutverki varðandi nýjar reglugerðir en áformin hafa mætt harðri andstöðu frá bæði Íhaldsflokknum og Reform UK. Lagabreytingin muni ná yfir samninga við ESB um matvæli, kolefnisverðlagningu í iðnaði og raforkuskipti. Ferlið myndi líkjast því sem var við lýði fyrir Brexit þegar Bretar innleiddu hundruð slíkra reglna árlega til að uppfylla skuldbindingar sínar gagnvart ESB. Áformin eru þó umdeild þar sem Bretland hefur ekki lengur atkvæðarétt innan sambandsins til að móta reglurnar.

Share this article