Héraðssaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur Eimskipafélagi Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu félaganna á gámaflutningaskipunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þess er krafist að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þar segir einnig að héraðssaksóknari hafi fellt niður rannsókn á framkvæmdastjóra Rekstrarsviðs Eimskipa vegna sölu skipanna og réttarstöðu hans sem sakbornings í málinu og málinu gagnvart honum sé þar með lokið. Umhverfisstofnun kærði málið til héraðssaksóknara árið 2020. Kveikur fjallaði um sölu skipanna Goðafoss og Laxafoss í september sama ár og greindi frá því að Eimskip hefði notað alræmdan millilið, fyrirtækið GMS, til þess að kaupa skipin til að komast fram hjá evrópskum reglum og farga skipunum á sandströnd við Indland. Í tilkynningunni segir að Eimskip telji sig hafa fylgt í einu og öllu lögum og reglum í söluferli skipanna sem voru seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu. „Eimskip fagnar því að óvissu gagnvart starfsfólki hafi nú verið eytt og mun taka til varna fyrir dómstólum.“