Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ákæra gefin út gegn Eim­skipi

  • What: Lawsuit against Eimskip
  • Impact: No direct impact on security
Read Full Article →

Héraðssaksóknari hefur gefið út ákærur á hendur Eim­skipafélagi Ís­lands hf. og Eim­skip Ís­land ehf. vegna sölu skipanna Goða­foss og Lax­foss, sam­kvæmt nýrri kaup­hallar­til­kynningu frá félaginu. Um leið hefur rannsókn á Hilmari Pétri Val­garðs­syni, fram­kvæmda­stjóra rekstrar­sviðs Eim­skips, verið felld niður. Í til­kynningunni segir að Eim­skip hafi í dag fengið upp­lýsingar um að ákærur hafi verið gefnar út á hendur félögunum tveimur og að þess sé krafist að þau verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakar­kostnaðar. Þar kemur jafn­framt fram að héraðssaksóknari hafi fellt niður rannsókn á Hilmari Pétri og að réttar­stöðu hans sem sak­bornings í málinu sé þar með lokið. Eim­skip segir í til­kynningunni að félagið telji sig hafa fylgt lögum og reglum í einu og öllu við sölu­ferli skipanna, sem hafi verið seld til áfram­haldandi rekstrar en ekki til endur­vinnslu. Félagið segist fagna því að óvissu gagn­vart starfs­fólki hafi verið eytt og kveðst munu taka til varna fyrir dómstólum. Málið á rætur að rekja til kæru Um­hverfis­stofnunar frá septem­ber 2020, þegar stofnunin kærði Eim­skip til héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úr­gangs í tengslum við sölu Goða­foss og Lax­foss. Þá lá fyrir að skipin hefðu endað í niður­rifi í Alang á Ind­landi. Eim­skip hafnaði ásökununum þegar kæran kom fram og sagði að skipin hefðu verið seld í lok árs 2019 til áfram­haldandi rekstrar eftir að hafa verið boðin til sölu í gegnum alþjóð­lega skipamiðlara. Að sögn félagsins tók nýr eig­andi við rekstri skipanna í upp­hafi árs 2020 og hafi síðar, án aðkomu Eim­skips, tekið ákvörðun um að selja þau í endur­vinnslu á Ind­landi. Við­skipta­blaðið greindi frá því í júní 2022 að Hilmar Pétur Val­garðs­son hefði verið boðaður til skýrslutöku hjá héraðssaksóknara og notið þar réttar­stöðu sak­bornings. Á sama tíma kom fram að Vil­helm Már Þor­steins­son, for­stjóri Eim­skips, myndi gefa skýrslu sem fyrir­svars­maður félagsins, án þess að vera sjálfur grunaður um refsi­verða hátt­semi. Í þeirri sömu um­fjöllun kom einnig fram að héraðssaksóknara hefði verið veitt heimild til hús­leitar á starfs­stöðvum Eim­skipafélags Ís­lands hf. og Eim­skip Ís­land ehf. undir lok árs 2021, á grund­velli úr­skurðar héraðs­dóms. Með nýjustu ákvörðun héraðssaksóknara hefur því rannsókn á starfs­manni félagsins verið felld niður, en málið heldur áfram gagn­vart félögunum sjálfum. Eim­skip hefur þegar boðað að það muni verja mál sitt fyrir dómstólum.

Share this article