Innlent | mbl | 14.4.2026 | 0:15 Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Gauksstaðir í Suðurnesjabæ. Smáhýsi þau sem Jón Steinar og viðskiptafélagi hans hyggjast reisa hafa verið teiknuð inn á myndina. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Jón Steinar Konráðsson, sem rak fósturheimili á Gauksstöðum í Garði á Suðurnesjum ásamt eiginkonu sinni á árunum 2009 til 2019, segir ekkert barn hafa orðið fyrir ofbeldi á heimilinu. Í færslu í íbúahópnum Garðmenn og Garðurinn á Facebook bregst Jón Steinar við umfjöllun um starfsemina á Gauksstöðum í fréttaskýringaþáttunum Þetta helst og Kastljósi á RÚV. Rannsóknin felld niður Í júní árið 2019 hófst rannsókn á ásökunum á hendur hjónunum á Gauksstöðum sem var felld niður eftir áralanga bið, eins og Jón Steinar rekur í færslunni. Segir hann að hvorki hafi fylgt afsökunarbeiðni né miskabætur. „Svo það sé alveg skýrt þá snérust ásakanir á hendur okkur um að börn hefðu ekki mátt eða hefðu þurft að gera hitt og þetta, sem á íslensku kallast agi,“ skrifar Jón Steinar og frábiður sér allan samanburð á máli Gauksstaða og þeim málum sem hafa verið í fréttum af vistheimilum barna frá miðri 20. öld. Runnið undan rifjum andstæðinga uppbyggingarinnar Hann segir að lífi þeirra hjóna hafi verið snúið á hvolf og mannorð þeirra skemmt. Svo hefðu þau bara átt að halda áfram með sitt líf eins og ekkert hefði í skorist. Þau hafi ákveðið að reyna að gera það. Jón Steinar ræðir í færslunni að ástæða þess að málið sé aftur komið í umræðuna nú sé uppbygging hans og viðskiptafélaga hans í ferðaþjónustu á Gauksstöðum. Segir hann andstæðinga uppbyggingarinnar hafa reynt allt til þess að koma í veg fyrir uppbyggingaráformin og síðasta hálmstráið sé að leggjast svo lágt að ráðast á persónu þeirra. Hann segir málið hafa legið þungt á fjölskyldunni sem hafi þurft að þola óviðunandi áreiti sökum ásakananna. „Við höfum látið það kyrrt liggja hingað til en nú er kominn tími til að láta fólk axla ábyrgð á orðum sínum.“ Frétt af mbl.is Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Frétt af mbl.is Íbúar argir: Bærinn vill gistihús á flóðasvæði Ber engan kala til barnanna Í færslunni rekur Jón Steinar m.a. að árið 2019 hafi hann fengið símtal frá dreng sem hafði verið í fóstri á Gauksstöðum. Drengnum hafði verið boðið að taka þátt í málsókn gegn þeim hjónum, þar sem nokkur þáverandi og fyrrverandi fósturbörn höfðu talað sig saman um að hægt væri að fá skaðabætur úr kerfinu ef þau kæmu saman og höfðuðu mál gegn þeim. Drengurinn neitaði þátttöku en vildi láta vita að eitthvað væri í undirbúningi. Jón Steinar segist engan kala bera til barnanna sem tóku þátt í málinu, það sé eðlilegt að börn geri mistök, leiti að blóraböggli fyrir stöðu sinni og láti peninga blinda sig í að fara gegn eigin sannfæringu. Vildu standa með börnunum „Ég geri mér fulla grein fyrir því að maður þurfti oft að vera hundleiðinlegur þegar kom að því að taka á málum sem komu upp en það var alltaf gert með því markmiði að standa með börnunum, styrkja þau og fá þau til þess að taka ábyrgð á eigin gjörðum og lífi. Alveg eins og ábyrgt foreldri gerir með sín eigin börn. Sannleikurinn er sá að flest þessi börn hafa verið í sambandi við okkur að eigin frumkvæði eftir að fóstri lauk, boðið okkur í veislur, sótt hjá okkur veislur, komið í heimsókn og hringt og vilja heyra í okkur hljóðið og leita ráða sem okkur þykir alltaf jafn vænt um.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Eygja gróða vegna endurkomu Dion Harmleikur á leik á Englandi „Kastað eins og hverri annarri kúkableyju“ Þjónusta milljónir manna í Kína Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Orban játar sig sigraðan Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Gæti átt yfir höfði sér réttindamissi, sekt og kæru „Vandamálin hverfa ekki bara“ Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þekkt leikkona styður Grindavík Lést eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Eygja gróða vegna endurkomu Dion Harmleikur á leik á Englandi „Kastað eins og hverri annarri kúkableyju“ Þjónusta milljónir manna í Kína Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaus í fyrsta skipti 63 ára Segir strengjabrúður Orbán-stjórnarinnar verða að víkja Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Vandamálin hverfa ekki bara“ Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þekkt leikkona styður Grindavík Lést eftir fall í Ölfusá