Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ungt fólk viti ekki hvers konar eftirlit maka er eðlilegt

  • What: Discussion on parental monitoring in relationships
  • Impact: No direct impact on security
Read Full Article →

Betri tækni og aukið eftirlit foreldra með börnum sínum veldur því að ungt fólk á erfitt með að átta sig á því hvers konar eftirlit er eðlilegt í ástarsamböndum. „Barnið mitt sem elst upp við þetta að þetta er gert af góðum hug, það hugsar ef ég á að taka ábyrgð á því að sýna ást mína í verki gagnvart annarri manneskju sem ég er að fara í samband við, þá hlýt ég að vilja vita alltaf hvar hún er,“ segirJenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis. Fjöldi fólks nýtir sér tækni sem gerir því kleift að fylgjast með staðsetningu fjölskyldumeðlima. Það getur verið öryggistæki, en ofbeldisfólk nýtir sér það einnig til að fylgjast með þolendum sínum. Jenný segist sjálf fylgjast með börnunum sínum með þessum hætti og það sé eðlilegt upp að ákveðnu marki og ákveðnum aldri. „En svo verðum við að átta okkur á því hvenær þetta er orðið bæði bara íþyngjandi og hvenær þetta er orðið óþarfi.“ Rætt var við Jennýju um umsáturseinelti í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hægt er að nálgast viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Ungt fólk sem leitar til Bjarkarhlíðar á oft erfitt með að greina milli þess hvað er eðlilegt eftirlit og hvað ekki, segir teymisstýra miðstöðvarinnar. Það er vegna aukins eftirlits foreldra með börnum.

Share this article