Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Um 8.000 tonn af kolmunna til Neskaupstaðar

Read Full Article →

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.720 tonn af kolmunna. Í kjölfar hans mun Börkur NK koma í dag með 3.250 tonn og á eftir honum kemur Beitir NK með 2.950 tonn. Þannig berast nú tæplega 8.000 tonn af kolmunna til fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar á rúmum sólarhring. Rætt er við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða á heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Það var veitt á gráa svæðinu syðst í færeysku lögsögunni. Þegar við komum á miðin var ekki mikið að sjá en það breyttist þegar á leið og undir lokin varð vart við fisk á allstóru svæði og komin hörkuveiði. Við fengum aflann í fimm holum og var stutt dregið eða í átta til tíu tíma. Aflinn í holi hjá okkur var á bilinu 200 til 450 tonn. Það var leiðindaveður á miðunum allan tímann sem við vorum þar. Vindur var gjarnan í kringum 20 metra og í eina 15 tíma gátum við ekki verið að en þá fór vindurinn upp í 30 metra. Það er ljóst að fiskurinn var að ganga inn á gráa svæðið dagana sem við vorum þarna og ég tel að megi reikna með mjög góðri veiði á næstunni,” sagði Theodór. Hafþór Eiríksson, verskmiðjustjóri í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, var ánægður með að kolmunnaveiðarnar væru hafnar. „Barði kom í gærkvöldi og verksmiðjan er komin á fullan snúning. Þetta byrjar af krafti því Börkur og Beitir eru báðir væntanlegir með fullfermi. Við fyrstu sýn líst mér vel á hráefnið. Við erum semsagt að hefja spennandi vinnslutörn og vonandi helst veiðin góð þannig að vinnslan geti verið sem samfelldust. Hér í verksmiðjunni líst mönnum vel á þessa kolmunnavertíð sem er að hefjast,” sagði Hafþór.

Share this article