Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kolmunnaveiðum SVN í færeyskri lokið

  • What: Trawler fishing in Svalbard ends
  • Impact: Fishing activity in Arctic region
Read Full Article →

Beitir NK kom til hafnar í Neskaupstað í morgun með 2.720 tonn af kolmunna sem fékkst í færeyskri lögsögu. Þar með er kolmunnaveiðum Síldarvinnsluskipa lokið að sinni. Barði NK kom með 2.100 tonn til heimahafnar sl. þriðjudag og Börkur NK kom með 3.200 tonn á miðvikudaginn. Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, var mjög ánægður með veiðina að undanförnu. „Við hófum veiðar í þessari veiðitörn snemma í apríl og þetta var fjórði túrinn. Veiðarnar hafa gengið vel. Nú í síðasta túrnum var veitt með skilju í Ræsinu við Færeyjabankann en það er talsvert norðar en áður. Að þessu sinni fékkst aflinn í sex holum. Dregið var í sex til ellefu tíma og aflinn í hverju holi var frá 350-450 tonn. Í reyndinni hefur kolmunnaveiðin verið afar góð og það er svo sannarlega gaman þegar vel veiðist. Nú liggur fyrir að sótthreinsa lestar og þrífa allt skipið en síðan verður farið í vélarupptekt,” sagði Þorkell í samtali við tíðindamanna heimasíðu Síldarvinnslunnar. Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, sagði að túrinn hefði gengið vel. „Við vorum innan við þrjá sólarhringa að fylla skipið og það telst afar gott. Aflinn fékkst í sjö holum á skiljusvæði. Dregið var í fjóra til tíu tíma og afli í holi var á bilinu 360-580 tonn. Fiskurinn er á norðurleið í ætisleit og vonandi endar hann í Rósagarðinum í íslenskri lögsögu,” sagði Hjörvar. Ólafur Gunnar Guðnason skipstjóri á Beiti sagði að verulega hefði dregið úr veiðinni síðustu dagana. „Þegar fiskurinn gengur norður eftir dreifir hann sér og þá verður veiðin bölvað sarg. Við fengum aflann í tíu holum og var dregið í tuttugu tíma eða svo. Aflinn var 200-300 tonn í holi. Þetta er í reynd hefðbundin þróun veiðanna í færeysku lögsögunni á vorin. Annars geta menn ekki verið annað en mjög ánægðir með kolmunnaveiðarnar að undanförnu,” sagði Ólafur Gunnar.

Share this article