- What: First fishing trip of the vessel Birtingur NK was successful
- Impact: Indicates positive performance of the fishing industry
Ísfisktogarinn Birtingur NK 119 kom til Hafnarfjarðar á laugardaginn að loknum fyrsta alvörutúrnum eftir að Síldarvinnslan festi kaup á skipinu. Áður hafði Birtingur farið í stuttan prufutúr fyrir páskana. Birtingur NK kom í fyrsta sinn til heimahafnar í Neskaupstað í október 2024. Síldarvinnslan hafði þá fest kaup á skipinu en Skinney-Þinganes á Hornafirði var fyrri eigandi og þá hét það Þórir SF 77. Skipið var smíðað í Tævan árið 2009 en það var lengt um 10 metra í Póllandi árið 2019 og þá var ýmsu breytt í því og margt endurnýjað. Birtingur NK með gott hol á Látragrunni. Mynd/Adam Helgi Jóhannesson Rætt er við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra á heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Þessi túr gekk afar vel og það fiskaðist ágætlega. Við létum úr höfn í Hafnarfirði og héldum norður á Látragrunn þar sem veitt var í þokkalegasta veðri. Menn eru að læra á skipið og í ljós kom að þörf er á að gera smávægilegar lagfæringar og það verður gert núna. Við fylltum öll kör sem voru um borð og komum að landi með um 60 tonn af góðum fiski. Áhöfnin er afar ánægð með skipið. Það er í alla staði gott að vinna á því og sjóhæfni þess virðist vera hin besta,” sagði Hjálmar Ólafur. Birtingur hélt á ný til veiða í gærkvöldi og var stefnan tekin á Melsekk þar sem reyna á við gullkarfa. Gert er ráð fyrir að skipið landi á ný á miðvikudag.