Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aðgangur að búnaði framleiðenda til eftirlits

  • What: Updates on fishing industry regulations and permits
  • Impact: Fishing industry professionals
Read Full Article →

Sjókvíaeldi hefur vaxið hratt og mikið er framundan einnig í landeldi. Það er í mörg horn að líta hjá löggjafanum og stofnunum landsins og þar er Matvælastofnun, MAST, ekki undanskilin. Karl Steinar Óskarsson deildarstjóri fiskeldis segir eitt stærsta málið framundan sameiningu MAST, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs í Stofnun atvinnuveganna sem og auknar heimildir til eftirlits í kvíum með búnaði framleiðenda. Innan MAST er enn til vinnslu umsókn um leyfi fyrir sjókvíaeldisstöð Kaldvíkur í Seyðisfirði. Að öðru leyti snúast verkefni fiskeldisdeildarinnar á þessu sviði mest um breytingar á gildandi leyfum og endurnýjun leyfa. Miðað við núgildandi lög er ekki hægt að úthluta auknum lífmassa í sjókvíaeldi heldur fara slík mál í gegnum útboðskerfi. Hvað landeldið varðar berast MAST reglulega nýjar umsóknir. Þar er um að ræða umsóknir um ný leyfi fyrirtækja, fyrirtækja sem hafa hafið starfsemi og sækja um stækkun, breytingu á fyrirliggjandi leyfi eða ný leyfi. Verkefni af margvíslegum toga Til að ná betur utan um verkefnin hefur starfsmönnum MAST fjölgað á undanförnum tveimur árum. Verkefni fiskeldisdeildarinnar felast meðal annars í útgáfu leyfa, endurnýjun og breytingu leyfa í lagareldi. Viðfangsefnin eru líka sjúkdóma- og smitvarnir, eftirlit með innflutningi á hrognum og búnaði til fiskeldis ásamt útflutningi á hrognum til yfir 20 landa. Einnig hefur fiskeldisdeildin eftirlit með rekstri fyrirtækjanna, innra eftirliti þeirra og að virku verklagi sé fylgt í strokvörnum jafnt í eldi í sjó og á landi. Deildin fylgist með því að farið sé eftir hámarki lífmassa sem fyrirtækjum er heimilt að hafa í sjó, að burðarþol svæða sé virt og fylgst er með áhættumati erfðablöndunar, afföllum og lús svo fátt eitt sé nefnt. Það er því af mörgu að taka. Aðlögun að nýrri sýn 2023 voru starfsmenn deildarinnar fimm talsins. Árin 2024, 2025 og 2026 fékk MAST sérstaka fjármögnun frá ríkisstjórninni sem gerði stofnuninni kleift að fjölga starfsmönnum fiskeldisdeildar í þrettán. Deildin er með starfsmenn allan hringinn í kringum landið, þ.e.a.s. Patreksfirði, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Neskaupstað, Selfossi og Reykjavík. Starfsmenn búa yfir þekkingu og þjálfun frá MAST. Karl Steinar segir að staðan hafi að þessu leyti lagast mikið. Hann bendir á að umhverfið sé breytingum háð. Nú sé verið að leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um lagareldi ásamt frumvarpi til laga um nýja stofnun, Stofnun atvinnuveganna. Inn í þessa nýju stofnun renna Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs. Verði þetta að lögum á Stofnun atvinnuveganna að taka til starfa 1. janúar 2027. Karl Steinar Óskarsson deildarstjóri hjá MAST. „Okkar verkefni núna felst líka mikið í því að undirbúa okkur að aðlögun að nýjum áherslum sem ríkisstjórnin er þarna að leggja til. Að mínu mati er stofnunin tilbúin í þá vegferð.“ Nýjar og öflugri eftirlitsaðferðir Í tengslum við fyrirhugaða sameiningu er MAST nú að þróa nýjar eftirlitsaðferðir sem taka mið af þeirri staðreynd að lagareldi er í grunninn hátækniiðnaður. „Við fáum reglulega gríðarlegt magn upplýsinga frá framleiðendum. Eftirlit okkar er því að stórum hluta rafrænt fjareftirlit og þannig fylgjumst við með þróun í hverri einustu kví. Svo verður einnig um landeldið þegar það tekur flugið. Að fara út í stöðvarnar er einungis brot af eftirlitinu því að stærstum hluta byggist það á rafrænum aðferðum. Ef lagareldisfrumvarpið verður að lögum fáum við auknar heimildir til þess að nýta okkur tæknibúnað eldisfyrirtækjanna, það er að segja myndavélabúnað og myndgreiningarbúnað sem styðst við gervigreind til upplýsingaöflunar. Það mun hjálpa okkur mikið til þess að greina stöðuna hverju sinni. Þannig erum við að þróa eftirlitið jafnharðan og þetta er gert í samvinnu og með vilja framleiðendanna. Allt snýst þetta um að það sé traust til staðar milli aðila og gott samstarf.“ Eftirlit með sjókvíaeldi myndi með þessum hætti taka algjörum stakkaskiptum. Í hverri kví geta verið 200 þúsund fiskar og upp í fimmtán kvíar í rekstri á hverju eldissvæði. Með myndavéla- og myndgreiningarbúnaði með gervigreind er unnt að fylgjast mun betur með stöðunni í hverri kví og þróuninni sem þar verður.

Share this article