- What: Laxey hf. plans to expand fish processing plant in Vestmannaeyjar
- Impact: Potential environmental and regulatory implications for local fishing industry
Laxey hf. áformar að stækka landeldisstöð sína við Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum og sækja um leyfi fyrir allt að 42.000 tonnum á ári. Áformin hafa verið birt í skipulagsgátt Húsnæðis-, mannavirkja- og skipulagsstofnunar. Núverandi leyfi heimilar hámarks lífmassa upp í allt að 7.000 tonnum en eftir stækkun verði hámarks lífmassi í stöðinni allt að 22.000 tonn í fullum rekstri. Einnig eru áform um að reisa aðra seiðaeldisstöð á athafnarsvæði vestan við Viðlagafjöru þar sem hámarks lífmassi verði allt að 300 tonn. Núverandi leyfi landeldisfyrirtækisins Laxeyjar hf. í Vestmanneyjum er 11.500 tonn laxfiska á ári. Fiskeldið stendur við Viðlagafjöru sem staðsett er austarlega á Heimaey. Fyrirtækið hyggst stækka landeldisstöð sína og sækja um leyfi fyrir allt að 42.000 tonnum á ári. Laxey hefur sótt um leyfi fyrir því að ala seiði í seiðaeldisstöð í botni Friðarhafnar. Núverandi leyfi áætlar að hámarks lífmassi seiðaeldis geti verið allt að 200 tonn en áform eru um að reisa nýja seiðaeldisstöð í viðlagafjöru með allt að 800 tonna lífmassa. Í umhverfismatsskýrslu eru lagðir fram tveir valkostir fyrir framkvæmdina ásamt núllkosti sem felur í sér að ekki verði ráðist í stækkun stöðvarinnar. Valkostur 1: Áætluð ársframleiðsla er um 42.000 tonn af laxi. Áætluð vatnsþörf er 28,0 m3 /sek. Valkostur 2: Áætluð ársframleiðsla er 23.500 tonn af laxi. Áætluð vatnsþörf er 16,75 m3 /sek. 0-kostur: Áætluð ársframleiðsla er samkvæmt núverandi leyfi, 11.500 tonna af laxi. Áætluð vatnsþörf er 10,6 m3 /sek. Umhverfisáhrif framkvæmdarinnar hafa nú verið metin. Fjallað er um áhrif á grunnvatn, viðtaka og lífríki í viðtaka, fuglalíf, strok og erfðablöndun, loftslag og landslag og ásýnd. Umhverfismatsskýrsla er nú kynnt almenningi, hagsmunaaðilum og lögbundnum umsagnaraðilum um sex vikna skeið. Á þessu tímabili gefst almenningi tækifæri til að koma með athugasemdir við skýrsluna og á sama tíma mun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leita umsagna lögbundinna umsagnaraðila. Sjá má skýrsluna, sem unnin er af Eflu verkfræðistofu, hér .