- What: Fish contaminated with bleach found in Iceland
- Impact: Potential health risks for consumers
Matorka ehf. tilkynnti Matvælastofnun um strok bleikju úr eldisstöð sinni að Húsatóftum við Grindavík laugardagmorguninn 11. apríl 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að fiskurinn séu um 600 grömm að meðalþyngd og að Matorka telji að um 500 fiskar hafi strokið. Telji að bleikjan geti ekki lifað í sjó „Fyrirtækið virkjaði strax viðbragðsáætlun vegna stroks. Rist á útfalli kers mun hafa gefið sig vegna tæringar með þeim afleiðingum að fiskur komst með útfalli í sjó fram. Viðgerð var framkvæmd strax og gerðar ráðstafanir til þess að skoða ástand annarra kerja. Fyrirtækið telur ekki miklar líkur á að bleikjan sem strauk hafi getað lifað í fullsöltum sjó,“ segir á vef Matvælastofnunar sem kveðst vinna að rannsókn málsins og muni gefa út eftirlitsskýrslu þegar rannsókn sé lokið.