Innlent | mbl | 14.4.2026 | 15:03 Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Heiða Björg vill ekki að börn fái pylsu í matinn í skólanum. Samsett mynd Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Meirihlutinn í Reykjavík hefur lagt nýja matarstefnu borgarinnar fyrir borgarstjórn en samkvæmt henni verða unnar kjötvörur bannaðar sem aðalmáltíð á matseðlum borgarinnar. Meðal annarra aðgerða sem meirihlutinn leggur til er að hafragrautur verði í boði á hverjum morgni í grunnskólum og að fagleg stjórnun matarmála í borginni verði sameinuð undir forystu verkefnastjóra næringar. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri lagði matarstefnuna fyrir borgarstjórn í upphafi borgarstjórnarfundar nú í hádeginu. Líflegar umræður spunnust um stefnuna og standa þær enn en fulltrúar minnihlutans hafa til að mynda sakað borgarstjórn um forræðishyggju í þessum efnum. 30 aðgerðir í heildina Matarstefnan telur rúmlega 20 síður en í henni eru lagðar til 30 aðgerðir. „Þessi uppfærða matarstefna og aðgerðaáætlun leggja mikla áherslu á virka þátttöku íbúa og hagaðila um alla borg. Framtíðarsýn matarstefnunnar er að unnið verði markvisst að því að allir íbúar borgarinnar hafi aðgang að mat sem er bragðgóður og næringarríkur,“ segir í inngangi borgarstjóra að stefnunni. „Einnig að neysla matar, framleiðsla og meðhöndlun gangi ekki nærri náttúrunni, hvorki staðbundið né hnattrænt. Þá ætti að vera auðvelt aðgengi að góðum og næringarríkum mat, hvort sem um ræðir bændamarkaði, matvörubúðir, veitingastaði eða grænmetisgarða.“ Fræðsluvika og notalegt umhverfi Meðal þeirra 30 aðgerða sem lagðar eru til er að fagleg stjórnun matarmála borgarinnar verði sameinuð undir forystu verkefnastjóra næringar sem hefur yfirsýn yfir aðgerðir og gæðaeftirlit með matvælaframleiðslu borgarinnar og að Reykjavíkurborg verði meðlimur í svokölluðum Milan Urban Food Policy Pact. Þá mun borgin bjóða íbúum sínum upp á fæðutengda fræðslu um hvernig nýta má afurðir úr náttúrunni sér til matar, sveppi, ber og krydd. Meðal þeirra aðgerða sem lagt er til til að auka sjálfbærni og gæði matar er að boðið verði upp á val um grænmetisrétt í öllum mötuneytum og unnar kjötvörur falli út af matseðli sem aðalmáltíð. Árleg fræðsluvika um minni matarsóun ætluð öllum borgarbúum og matvælafyrirtækjum verður haldin auk þess sem kolefnisspor flestra máltíða á vegum borgarinnar verður reiknað og birt á aðgengilegan hátt. Þá leggur borgin til að boðið verði upp á hafragraut á morgnana í öllum grunnskólum og að börnum verði tryggður hæfilegur tími til að neyta matar í notalegu umhverfi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Fyrrverandi miðjumaður Liverpool vill snúa aftur Stjarna Liverpool biðst afsökunar Ný gátt til að tilkynna netglæpi Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gæti átt yfir höfði sér réttindamissi, sekt og kæru Ætla ekki að kæra ákvörðun um meintan eltihrelli Hagur verkafólks að standa utan ESB Ræða gagnrýni á stórtónleikana Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Fyrrverandi miðjumaður Liverpool vill snúa aftur Stjarna Liverpool biðst afsökunar Ný gátt til að tilkynna netglæpi Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Búa sig undir tvær myrkar mínútur Hissa en tjáir sig ekki um lágflugið Ræða gagnrýni á stórtónleikana Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi