Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.4.2026 | 23:13 Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Steinþór Skúlason forstjóri Sláturfélags Suðurlands. mbl.is/Eggert Jóhannesson Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, telur að ný matarstefna Reykjavíkur þar sem kveðið er á um að ekki verði boðið upp á unnar kjötvörur í mötuneytum borgarinnar taki ekki mið af gæðum íslenskra kjötvara. Í samtali við mbl.is segir Steinþór að í umræðunni um matarstefnuna hafi hann fyrst og fremst sett út á þrjú atriði í tengslum við unnar kjötvörur, þ.e. salt, reykingu og nítrat. „Í flestum tilfellum er saltinnihald í kjötvörum um 2%. Ef eldað er frá grunni eins og stefnan er þá má reikna með því að maturinn sé saltaður um a.m.k. 2% svo það minnkar ekki saltneyslu að banna unnar kjötvörur,“ segir Steinþór og bætir við: „Og ef ofneysla salts er stórt vandamál þá hlýtur Reykjavíkurborg næst að banna að selja popp í bíóhúsum borgarinnar því saltið í því er miklu meira en nokkurn tímann í unnum kjötvörum. Frétt af mbl.is Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur Vínarpylsan góður valkostur Þá segir hann rökin er varða reykingu matvæla heldur ekki á rökum reist. „Það er vitað að við bruna geta myndast skaðleg efni. Þess vegna hefur SS breytt úr gamaldags reykingu yfir í svokallaðan fljótandi reyk fyrir flestar vörur sem er þá bragðefni úr reykningu sem búið er að hreinsa skaðleg efni úr.“ „Í þriðja lagi er það nítrítið. Nítrít er nauðsynlegt í hóflegu magni til að tryggja öryggi matvæla með tilliti til matareitrunar og þá einkum bakteríu sem heitir Clostridium botulinum og getur verið mjög skaðleg,“ segir Steinþór. Hann bætir við að nítrat í vörum eins og SS-vínarpylsum sé aðeins 75 mg í hverju kílói af pylsum og að svo lítið magn sé ekki skaðlegt í neyslu. „Það gildir um unnar kjötvörur eins og flest að hinn gullni meðalvegur er farsælastur. Það er ekkert að því að borða unnar kjötvörur í hófi með öðrum mat og með tilliti til skyndibita þá er vínarpylsan góður valkostur.“ Steinþór segir vínarpylsuna góðan valkost meðal skyndibita. mbl.is/Arnþór Birkisson Langur lífaldur þjóðarinnar jákvætt merki Í Kastljósþætti í síðustu þar sem nýja matarstefnan var til umræðu sagði verkefnastjóri næringar hjá landlæknisembættinu að unnar kjötvörur á borð við pylsur og bjúgu hefðu verið flokkaðar í 1. flokk sem krabbameinsvaldandi vörur með efnum á borð við asbest. Steinþóri finnst þetta ekki smekklegur samanburður. „Það er ákaflega ósmekklegt að tala um að unnar kjötvörur séu eins og asbest eins og fram kom í Kastljósþættinum,“ segir hann og bætir við: „Annað sem er vert að benda á er að meðalaldur Íslendinga er einn sá hæsti í heiminum, yfir 80 ár, og því erfitt að sjá að hefðbundinn íslenskur matur eins og saltkjöt valdi miklum skaða.“ 1 blogg um fréttina Bloggað um fréttina Guðjón E. Hreinberg: Umhyggjustreituröskun [okkar og] elítunnar Nýjast á mbl.is » Hugrekkið kostaði hana lífið Opið lengur í sundlauginni Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórfelld líkamsárás á Akureyri: Tveimur sleppt úr haldi Ljúfsárt að kveðja þingið Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Tókust á um ESB: „Ég kalla þetta þvælu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Opið lengur í sundlauginni Gunnar kjörinn formaður Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Nýjast á mbl.is » Hugrekkið kostaði hana lífið Opið lengur í sundlauginni Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spyr frá hvaða öld kerfi Veitna sé „Þetta er búið að vera til skoðunar lengi“ Bíða samþykkis stjórnvalda „Flestir sammála um að orðalagið sé óskýrt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Opið lengur í sundlauginni Gunnar kjörinn formaður Trúir að framkvæmdir hefjist á næsta ári Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Árni tekur sæti Þórdísar: „Þetta verður gaman“ Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Allt tiltækt lið kallað í Kópavoginn Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Íslensk kona löskuð eftir andlitslyftingu Faðir drengsins svarar yfirlýsingu lögmanns Helga Hiti gæti náð allt að 20 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Vinsælum veitingastöðum lokað Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur

Share this article