Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Reykjavíkurborg dreifir heitum mat á ný

  • What: Reykjavíkurborg resumed distributing hot meals after a listeria outbreak forced them to halt the service.
  • Impact: Residents and community centers will once again have access to hot meals.
Read Full Article →

Reykjavíkurborg hefur samið við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu allt að 1.000 máltíða á dag sem dreift verður í heimahús, félagsmiðstöðvar og þjónustuíbúðir velferðarsviðs borgarinnar. Samningurinn gildir í tvo mánuði á meðan unnið er að lausn til lengri tíma. Frá og með 2. mars verður því hægt að kaupa heitan mat að nýju í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs borgarinnar. Eldhúsinu lokað vegna listeríu Reykjavíkurborg hætti að dreifa heitum mat eftir að listería greindist í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi í byrjun mánaðar. Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri Velferðarsviðs, segir að sökum aðstæðna hafi ekki verið hægt að bjóða upp á heitan mat eins og venjulegt er frá því bakterían greindist. Þess í stað hafi bilið verið brúað með því að bjóða upp á skyr, brauð og annað slíkt. „Við höfum reynt að bregðast við þessu eins og við mögulega getum, en auðvitað er þetta ekki alveg eins og við viljum hafa það. Við viljum geta boðið upp á heitan mat í félagsmiðstöðvunum og munum gera það núna eftir mánaðamót.“ Leita að langtímalausn Samningi borgarinnar við Krydd og Kavíar fylgir aukinn kostnaður en Rannveig segir að þetta sé tímabundin og nauðsynleg ráðstöfun til þess að hægt sé að bjóða upp á lögbundna þjónustu sem samræmist gæðakröfum. „Hann hefur aukinn kostnað í för með sér en þetta er mikilvæg lögbundin þjónusta sem við verðum að bjóða upp á og Krydd og Kavíar getur boðið upp á þann mat sem stendur undir þeim gæðakröfum sem þörf er á fyrir þennan mat,“ segir Rannveig. „Við gerum þennan samning til tveggja mánaða en síðan munum við leita eftir samningum til lengri tíma á meðan verið er að byggja upp nýtt eldhús á Vitatorgi.“

Share this article