Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.2.2026 | 11:10 Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Gera á eldhúsið upp þannig það standist nútímakröfur. mbl.is/Heiðar Kristjánsson Mikil óánægja ríkir meðal eldri borgara sem sækja félagsmiðstöðvar Reykjavíkurborgar með að geta ekki stólað á hádegismat þar eftir að framreiðslueldhúsinu á Vitatorgi var lokað í kjölfar listeríusmits fyrr í þessum mánuði. Ekki hefur verið framreiddur hádegismatur í félagsmiðstöðvunum í 10 daga. Á fundi borgarráðs í gær lá fyrir samningur við fyrirtæki um framreiðslu máltíða, en afgreiðslu málsins var frestað. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir frestun afgreiðslu málsins. Hann bendir á að margt eldra fólk, sem ekki sé vel á sig komið líkamlega, treysti algjörlega á hádegismatinn og að þjónustubresturinn komi því illa við það. Hann greiddi atkvæði gegn frestuninni. „Margt fólk á erfitt um vik með að ná sér í mat annars staðar þar sem það styðst við göngugrindur, hækjur, stafi eða rafskutlur,“ segir Kjartan við mbl.is. Frétt af mbl.is Listería fannst í framleiðslueldhúsinu Starfsfólk reynir að útbúa mat Starfsfólk félagsmiðstöðvanna hafi eftir bestu getu reynt að útbúa mat, en það sé vandkvæðum bundið því eldhúsin séu ekki búin fyrir matseld. Því hafi til að mynda verið boðið upp á pylsur, pizzur og skyr og brauð. Kjartan bendir á að samningur við fyrirtæki um framleiðslu máltíða hafi legið fyrir fundi borgarráðs í gær, en lögð var fram samþykkt velferðarráðs frá 10. febrúar um tillögu að samningi. Afgreiðslu málsins var frestað án þess að hann væri samþykktur og án þess að viðunandi lausn til bráðabirgða væri fundin, að sögn Kjartans „Frá félagsmiðstöðvum velferðarsviðs berast þær fregnir að þar hafi eldri borgarar ekki fengið framreiddan mat í níu daga. Slíkt er óviðunandi og brýnt að bæta úr slíku ófremdarástandi sem fyrst. Óskað er eftir því að málið hljóti afgreiðslu sem fyrst í borgarráði,” segir í bókun Sjálfstæðisflokksins frá því á fundi borgarráðs í gær. Frétt af mbl.is Tíu hafa tilkynnt um veikindi Framleiddu yfir 900 máltíðir á dag Líkt og áður sagði var framreiðslueldhúsinu á Vitatorgi lokað í byrjun febrúar eftir að listeríusmit fannst þar við reglubundna sýnatöku. Þar voru framleiddar yfir 900 máltíðir á dag, bæði fyrir heimsendingu og sem bornar voru fram í félagsmiðstöðvum eða þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg vegna lokunarinnar, þann 2. febrúar síðastliðinn, sagði að ekki yrði skerðing á þjónustu hvað snerti heimsendan mat en að ekki yrði hægt að bjóða upp á heitan mat í hádeginu í nokkrum félagsmiðstöðvum daginn eftir. Það virðist þó hafa orðið lengra rof á þjónustunni, samkvæmt bókun Sjálfstæðisflokksins. Til stendur að stækka og gera upp eldhúsið á Vitatorgi frá grunni en ráðist er í breytingarnar til að nútímakröfur um húsnæði og starfsemi framleiðslueldhúsa séu uppfylltar. Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar taki 12 til 18 mánuði. Pílustaður ekki íþróttamannvirki Andrés prins lak trúnaðargögnum um Ísland Þrír látnir í miklu óveðri á Spáni og Frakklandi Enn frestast dómsuppkvaðning í meiðyrðamáli Margrétar Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Brunagaddur á nokkrum stöðum Hlutur vöggustofubarna verði réttur Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Pílustaður ekki íþróttamannvirki Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Brunagaddur á nokkrum stöðum Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Ríkisfjármálaleg tímasprengja Valhöll verður afhent í sumar Bústaðurinn brann til kaldra kola Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Pílustaður ekki íþróttamannvirki Andrés prins lak trúnaðargögnum um Ísland Þrír látnir í miklu óveðri á Spáni og Frakklandi Enn frestast dómsuppkvaðning í meiðyrðamáli Margrétar Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Dregur úr hömlum á losun gróðurhúsalofttegunda Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Hvernig mun framtíð Evrópu og Bandaríkjanna líta út? Framsókn kýs nýjan formann Eldur í bústað við Elliðavatn Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Þar sem enginn vill halda sín jól Anna Lea kjörin formaður fyrst kvenna Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Brunagaddur á nokkrum stöðum Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Ríkisfjármálaleg tímasprengja Valhöll verður afhent í sumar Bústaðurinn brann til kaldra kola Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum

Share this article