Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Borgarstjórn endurskoðar gjaldsvæði bílastæða

Read Full Article →

Borgarstjórn samþykkti í dag að taka gjaldsvæði bílastæða og útfærslu gjaldskyldu til endurskoðunar. Á fundi borgarstjórnar var einnig samþykkt að farið yrði í heildarendurskoðun á verklagsreglum sem varða breytingar á stækkun gjaldskyldusvæða eða útfærslu á verðlagningu og tímamörkum sem þeim fylgja hverju sinni. Í tilkynningu Reykjavíkurborgar kemur fram að gjaldsvæði P1 verði tekið til endurskoðunar og að jafnframt verði ráðist í að breyta hluta svæða P2 í P3 þar sem ekki er gjaldskylda um kvöld og helgar. Auk þessa verður útfærsla gjaldskyldu á sunnudögum tekin til endurskoðunar á íbúasvæðum með það að markmiði að gera íbúakort sveigjanlegri. Loks verður ráðist í markvissa kynningu á bílastæðum Reykjavíkurborgar og aðgengi að þeim. Hvað kostar að leggja bílnum í Reykjavík? P1: 660 krónur á klukkustund. Kl. 9–21 virka daga og kl. 10–21 laugardaga og sunnudaga. Hámarkstími er 3 klst. P2: 240 krónur á klukkustund. Kl. 9–21 virka daga og kl. 10–21 laugardaga og sunnudaga. P3: 240 krónur á klukkustund fyrstu tvær klukkustundirnar. Eftir það 70 krónur Kl. 9–18 virka daga. P4: 240 krónur á klukkustund. Kl. 8–16 virka daga.

Share this article