Deila Það dylst engum manni að undanfarin ár hefur verið áþreifanlegur uppgangur í íslensku samfélagi. Ný hverfi hafa risið upp eins og gorkúlur á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma og kaupmáttur hefur aukist frá ári til árs og raungengi íslensku krónunnar verið í hæstu hæðum. Látum liggja milli hluta hversu sjálfbært þetta ástand er í raun og veru til lengri tíma. En að minnsta kosti má segja að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert sitt besta til þess að binda enda á þennan vöxt. Áróðurinn sem er borinn fyrir landsmenn um þessar mundir er að það sé sérstakt vandamál á Íslandi að hagvöxtur á hvern einstakling sé ekkert sérstaklega mikill og flykkjast stjórnarliðar og pólitískir fylgihnettir þeirra í hvern fjölmiðilinn á fætur öðrum til þess að lýsa þessu mikla vandamáli. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift