Oddvitar framboðanna sex í Hafnarfirði mætast í þessum fyrstu oddvitaumræðum RÚV fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Bergsteinn Sigurðsson og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir stýra umræðunum, þar sem meðal annars eru tekin fyrir samgöngumál, stækkunarmál bæjarfélagsins og leikskólaþjónusta. Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 32 þúsund íbúa. Þar bjóða fram eftirtaldir flokkar: Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Vinstrið Hér má nálgast dagskrá oddvitnaumræðnanna næstu vikur.