Innlent | mbl | 14.5.2026 | 17:15 Tekist á um þéttingarreit í Hafnarfirði Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi X26: Kópavogur – oddvitaslagur Telur Kristrúnu draga fylgið niður Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi » Fleiri tengdar fréttir Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, gagnrýnir það harðlega að uppbygging á reitnum Hraun-vestur í Hafnarfirði sé ekki lengra komin en raun ber vitni. Guðmundur Árni tókst á við Orra Björnsson, oddvita sjálfstæðismanna, um málefni húsnæðisuppbyggingar í bænum í oddvitaslag í myndveri Morgunblaðsins á dögunum. Hraun-vestur er reitur þar sem áformað er að reisa 2.500-3.000 íbúðir á næstu árum en þar er í dag einna helst atvinnusvæði og starfa þar vel yfir 100 fyrirtæki í alls kyns atvinnustarfsemi. Frétt af mbl.is X26: Oddvitar í Hafnarfirði takast á Snýst um pólitískt þrek og vilja Aðspurður afhverju hann héldi að verkefni væri ekki komið almennilega af stað sagði Guðmundur að spyrja yrði fulltrúa meirihlutans, Orra og Valdimar Víðisson, oddvita Framsóknar, að því. Flokkar þeirra hefðu ráðið ríkjum í bænum í 12 ár. „Við höfum lagt til aftur og aftur að setja í gírinn þar og fá uppbygginguna af stað. Það er byrjað á einum reit og annar í uppbyggingu en þarna er stórt og mikið svæði sem liggur vel í Hafnarfirði og dauðafæri til að gera miklu betur. Ég held að það sé almenn sátt að fara í þetta verkefni af fullum krafti en allt snýst þetta auðvitað um pólitískt þrek og vilja til að setja í gírinn og gera hlutina, það hefur aðeins vantað,“ sagði Guðmundur. Svaraði Orri þessari gagnrýni Guðmundar á þann veg að byggt hefði verið á þessu kjörtímabili í Hafnarfirði næstum tvö þúsund íbúðir og væri þar um að ræða fjölbreytt húsnæði. „Um það bil 40% af sérbýli sem hefur verið byggt á höfuðborgarsvæðinu hefur verið byggt í Hafnarfirði. Við erum að skapa mjög breitt úrval af eignum í nýbyggingum. Það er ekki hægt að saka okkur um það að hafa ekki verið að mæta þörfum markaðarins,“ sagði Orri. Hér má sjá mynd af byggingu sem fyrirhugað er að rísi á þéttingarreitnum. Tölvumynd/Hafnarfjarðarbær Ríkisstjórnin ráði ekki við verkefnið Lagði Orri þó áherslu á það að ríkisstjórnin í landinu væri að gera það að verkum að verðbólga hefði aukist, vextir hækkað og atvinnuleysi aukist. „Þar með hefur kaupgeta almennings farið niður og fólk ræður ekki við að kaupa sínu fyrstu eign, ekki nema með aðstoð foreldra. Þessi ríkisstjórn ber ábyrgð á því og hefur ekki gert neitt til þess að laga þá stöðu. Hún virðist ekki ráða við verkefnið, frekar en önnur,“ sagði Orri. Orri benti þó á að Hraun-vestur væri ekki lausnin ef verið væri að leita að ódýrum íbúðum. Þetta væri þéttingarreitur þar sem verið sé að rífa hús og því sé þetta dýrari reitur. Verkefnið sé þó farið af stað. „Við fórum í að vinna í þessu fyrir rúmum átta árum. Nú er byrjað að byggja og búið að samþykkja deiliskipulag fyrir um það bil 740 íbúðir. Þetta er 3.000 íbúða svæði í heildina og ég tel eðlilegan hraða á þessu svæði vera svona 15-20 ár, þannig ef við erum komin af stað með 740 íbúðir þá er þetta ekkert vandamál, þessi uppbygging mun verða en þetta eru ekki ódýrar íbúðir.“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Ungir sjálfstæðismenn staðnir að verki í Eyjum Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi X26: Kópavogur – oddvitaslagur Telur Kristrúnu draga fylgið niður Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tekist á um þéttingarreit í Hafnarfirði Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Elías danskur bikarmeistari Heimir niðurlægði FH Taka við staðarhaldinu á Hólum Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Þetta snýst um Hafnarfjörð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi X26: Kópavogur – oddvitaslagur Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Við vorum algerlega búnir á því“ „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Alþjóðlegt haglabyssumót í uppnámi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Tekist á um þéttingarreit í Hafnarfirði Áform borgarinnar komu borgarstjóra á óvart Elías danskur bikarmeistari Heimir niðurlægði FH Taka við staðarhaldinu á Hólum Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Þetta snýst um Hafnarfjörð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Segir fasteignagjöld hafa lækkað mest í Kópavogi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar Telur Kristrúnu draga fylgið niður Eyddi rúmri milljón af korti í heimildarleysi Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Við vorum algerlega búnir á því“ „Ég var ekki alveg áttaður á þessu“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum 31 þúsund þurfa að endurgreiða TR Alþjóðlegt haglabyssumót í uppnámi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Greiddi sama flugið tvisvar Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum