Innlent | Morgunblaðið | 15.4.2026 | 13:20 Minna flokkað á höfuðborgarsvæðinu Mikið er jafnan að gera á flokkunarstöð Sorpu. Í fyrra skilaði sér minna af flokkuðum úrgangi frá heimilum en árið á undan. mbl.is/Karítas Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Hagnaður af rekstri Sorpu jókst á milli ára. Heildarmagn úrgangs jókst sömuleiðis en fólk flokkar nú minna af matarleifum, plasti og pappír en áður. Þetta kemur fram í ársreikningi Sorpu og umhverfisskýrslu fyrirtækisins. Hagnaður af rekstri Sorpu á síðasta ári var 541 milljón króna, ríflega tvöfalt meiri en árið 2024. Tekjur fyrirtækisins voru 8,3 milljarðar en voru 7,8 milljarðar árið áður. Rekstrarkostnaður hefur í flestum liðum aukist töluvert. Athygli vekur að flokkun á matarleifum, plasti og pappír dalar á milli ára. Sem kunnugt er var úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu samræmd um mitt ár 2023 og var þátttaka almennings í fyrstu mjög góð. Nú ber hins vegar svo við að bakslag hefur orðið. Í fyrra skiluðu ríflega 16 þúsund tonn af endurvinnsluefni sér í tunnur íbúa en árið áður voru tonnin 17.327. Það er rúmlega 6% minna. Á sama tíma skilaði meira af blönduðum úrgangi sér í tunnur, 22.166 tonn í fyrra en 20.297 tonn árið 2024. Á móti kom meira í grenndargáma í fyrra en nokkru sinni fyrr og sömu sögu var að segja af endurvinnslustöðvum. Heildarmagn úrgangs sem barst til Sorpu árið 2025 var 164.205 tonn sem var 12% aukning frá fyrra ári þegar 157 þúsund tonn bárust. Lesa bílnúmer viðskiptavina „Hjá Endurvinnslustöðvunum skiluðu hliðgjöld 39% hærri tekjum en gert var ráð fyrir eða um 116 milljónum. Er markmiðið að auka þessar tekjur umtalsvert á árinu 2026 m.a. með því að nýta bílnúmeralesara til að greina íbúa höfuðborgarsvæðisins sem taka þátt í rekstri endurvinnslustöðvanna með sköttum frá íbúum utan höfuðborgarsvæðisins sem og fyrirtækja sem taka ekki þátt í þessum samrekstri. Er markmiðið með þessum breytingum að lækka framlag eigenda til reksturs endurvinnslustöðva og að þeir sem mengi greiði fyrir það,“ segir í skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra sem fylgir ársreikningi Sorpu. Dýrt að senda til Svíþjóðar Þar segir líka að allri urðun á blönduðum úrgangi hafi verið hætt í Álfsnesi í lok árs 2023 og útflutningur á blönduðum úrgangi tekinn upp í staðinn. „Að senda úrgang í brennslu er kostnaðarsamari vinnsluferill en að urða og hefur gjaldskrá samlagsins tekið breytingum í samræmi við aukinn kostnað. Þá er gengisáhætta til staðar og óvissa um verð frá móttökuaðilum og hugsanlega skattar og lagabreytingar í Evrópu er snúa að innflutningi á úrgangi,“ segir þar en eins og Morgunblaðið hefur greint frá stendur til að byggja nýja hátæknibrennslu fyrir allt blandað sorp á Íslandi til að komast hjá þessum útflutningi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Helgi Bjartur dæmdur í 12 mánaða fangelsi Minna flokkað á höfuðborgarsvæðinu Verulega góð aflabrögð undanfarið Íslensku stelpurnar á EM The airplane “disappeared” for four minutes Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf „Teljum okkur vera komna með skýra mynd af atburðarásinni“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor Lætur gott af sér leiða í La Marina Enn lagði Dista ÁTVR Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Nýjast á mbl.is » Helgi Bjartur dæmdur í 12 mánaða fangelsi Minna flokkað á höfuðborgarsvæðinu Verulega góð aflabrögð undanfarið Íslensku stelpurnar á EM The airplane “disappeared” for four minutes Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor Lætur gott af sér leiða í La Marina Enn lagði Dista ÁTVR Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu