Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) halda í dag hinn árlega SFF dag, ársfund samtakanna, klukkan 14:00 í Arion banka í Borgartúni 19. Yfirskrift dagsins í ár er Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin. Hvernig getur fjármálaþjónusta áfram stutt við hagvöxt og bætt lífskjör næsta áratuginn? Hvaða tækifæri felast í þróun fjártækni og gervigreindar og hvernig geta Íslendingar nýtt þau sem best? Fjallað verður um þessi málefni og fleiri, auk þess sem kynnt verður ný skýrsla, Íslensk fjártækni 2026 – Staða og tækifæri, sem unnin er af Northstack fyrir SFF og Íslandsstofu. Þátttakendur á fundinum eru: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Daði Már Kristófersson , fjármála- og efnahagsráðherra Tómas Brynjólfsson , varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Jón Guðni Ómarsson , formaður SFF og bankastjóri Íslandsbanka Heiðrún Jónsdóttir , framkvæmdastjóri SFF Benedikt Gíslason , bankastjóri Arion banka Guðmundur Hafsteinsson frumkvöðull Gunnlaugur Jónsson , stjórnarformaður Reykjavík Fintech Helga Valfells , meðeigandi og stofnandi Crowberry Capital Kristinn Árni Lár Hróbjartsson , stofnandi Northstack Kristín Gunnarsdóttir , forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans Marinó Örn Tryggvason , stofnandi ARMA Advisory