Innlent | mbl | 15.4.2026 | 21:25 Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Maðurinn leitaði á snyrtistofu í Hafnarfirði til að stækka lim sinn. Samsett mynd Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Karlmaður á fimmtugsaldri sem lét sprauta hýalúrónsýru í getnaðarlim sinn á snyrtistofu í Hafnarfirði endaði á bráðamóttöku Landspítala vegna sýkingar og fylgikvilla er tengdust aðgerðinni. Málið var um stund á borði landlæknis sem þó fjallaði ekki um það sökum þess að málefnið varðaði ekki heilbrigðisstarfsmann. Embættið sendi hins vegar erindi til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem hefur málið til rannsóknar. Málið er á borði lögreglunnar í Hafnarfirði en grunur leikur á því að snyrtistofan hafi gerst brotleg við reglugerð um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum sem innleidd var í fyrra. Þá leikur einnig grunur á broti á tollalögum, lyfjalögum og lögum um heilbrigðisstarfsmenn. „Það eru nokkur ákvæði sem eru þarna undir og eru til rannsóknar í þessu máli,“ segir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Frétt af mbl.is Staðfesti orðróminn um typpastækkun Stækkunaraðgerðir að færast í aukana Tilfelli mannsins var kynnt á sameiginlegu Vísindaþingi lækna árið 2026 sem fram fór á dögunum. Í kynningu á tilfellinu er fullyrt að stækkunaraðgerðum á getnaðarlim fari sífellt fjölgandi. Þar segir að maðurinn hafi verið sprautaður með hýalúrónsýru-fylliefni í getnaðarlim í fagurfræðilegum tilgangi á snyrtistofu. Hýalúrónsýra er notuð til ýmissa fegrunaraðgerða en læknar hafa varað við því að nota hana á viðkvæmum svæðum. Reyndu að leysa sýruna upp Rúmum mánuði síðar fór maðurinn að finna fyrir óþægindum í lim og fannst fylliefnið hafa færst til. Þá leitaði hann á snyrtistofuna og var sprautað á svæðið hýalúróníðasa til að leysa efnið upp. Í kjölfarið fékk hann hita, roða og óþægindi í lim og leitaði á bráðamóttöku þar sem hann var greindur með sýkingu, meðhöndlaður með sýklalyfjum og vísað á göngudeild þvagfæraskurðlækna. Fylliefni eru notuð í fegrunaraðgerðir. Ljósmynd/Unsplash Við skoðun á göngudeild sást greinilega að fylliefni hafði færst til og limur og forhúð höfðu afmyndast. Ekki var talið fýsilegt að framkvæma skurðaðgerð til að fjarlægja efnið og var honum vísað til húðlækna þar sem hann fékk meðferð með hýalúróníðasa og náðist fullur árangur eftir um níu meðferðir. Fékk leyfi til að rjúfa húð á síðasta ári Snyrtistofan sem framkvæmdi stækkunaraðgerðina hefur verið með starfsleyfi í mörg ár. Breyting varð á starfsleyfi hennar á síðasta ári þannig að henni er nú heimilt að bjóða upp á svokölluð fegrunarflúr. Til einföldunar veitir það snyrtistofunni heimild til þess að rjúfa húð en að sögn Harðar Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, er það gjarnan hugsað sem heimild til götunar í eyru eða nafla t.a.m. eða til húðflúrunar í fegrunarskyni. Hörður Þorsteinsson. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Hugsað sem lækningaaðgerð „Í svona starfsemi er ekki veitt heimild til notkunar fylliefna, heldur hefur alltaf verið litið svo á að það sé lækningaaðgerð. Á þessu eru þó undantekningar því ef hjúkrunarfræðingur t.a.m. er með leyfi frá landlækni fyrir svona aðgerðir þá má hann framkvæma þær á snyrtistofum,“ segir Hörður. Í þessu samhengi má vísa til þess að Landlæknisembættið fjallaði ekki formlega um málið þar sem enginn heilbrigðisstarfsmaður kom að stækkunaraðgerðinni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áslaug Arna aftur á þing í sumar Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Við knúsumst eftir leik Meistararnir unnu sannfærandi sigur Valur og Keflavík þurfa oddaleik Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Loftbrú breytt peninganna vegna Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Áslaug Arna aftur á þing í sumar Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Við knúsumst eftir leik Meistararnir unnu sannfærandi sigur Valur og Keflavík þurfa oddaleik Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Loftbrú breytt peninganna vegna Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Hissa en tjáir sig ekki um lágflugið Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn