Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Aðstoðar leitað vegna ráns í Árbæjarhverfi og grunsamlegra mannaferða í Hafnarfirði Markús Þ. Þórhallsson Aðstoðar lögreglu var óskað vegna ráns í Árbæjarhverfi í gærkvöld eða í nótt. Einnig var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Hafnarfirði, að því er segir í dagbók lögreglunnar. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Að öðru leyti virðast störf lögreglumanna að mestu hafa snúist um umferðina, meðal annars árekstur og afstungu í Laugaráshverfi, tvö umferðarslys í Kópavogi og kvartanir vegna þess hvernig bifreiðum var lagt í miðborginni. Fyrir 30 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Tímabundin virðisaukaskattslækkun á matvæli tekur gildi í dag Tímabundin helmingslækkun virðisaukaskatts á matvæli tekur gildi í Svíþjóð í dag. Hún nær til allra vöruflokka í verslunum og skyndibita sem tekinn er með heim. Svíar óttast að lækkunin lifi ekki lengi vegna áhrifa stríðsins í Mið-Austurlöndum. Fyrir 30 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Eins og hin börnin lesi hugsanir Það þarf ekki að vera flókið að bæta hljóðvist í skólastofum, segir kennsluráðgjafi sem aðstoðar kennara heyrnarskertra barna við að bæta skóladag þeirra. Vinnueftirlitið hefur gert athugasemdir við hljóðvist í 15 skólum síðastliðin þrjú ár. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandarískum blaðamanni rænt í Írak — loftárásum linnir ekki Sjálfstætt starfandi bandarískur blaðamaður er í haldi írakskrar vígasveitar, studdrar af Íransstjórn. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segist beita öllum ráðum við frelsun hennar. Loftárásir voru gerðar víða um Mið-Austurlönd í nótt. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Allt á að vera til reiðu fyrir sögulega ferð NASA að tunglinu Allt útlit er fyrir að þrír karlmenn og ein kona leggi í kvöld upp í fyrstu mönnuðu ferðina að tunglinu síðan árið 1972. Ferðin, sem áætlað er að taki um tíu daga, verður söguleg af mörgum öðrum ástæðum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Rubio segir tímabært að endurskoða tengslin við NATÓ Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir þarlend stjórnvöld þurfa að endurmeta tengslin við Atlantshafsbandalagið þegar stríðinu í Íran linnir. Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum vilja að stríðinu ljúki fljótt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Verjendur meints morðingja Kirks vilja fara betur yfir sönnunargögn í málinu og segja sumt ekki passa saman Verjendur mannsins sem grunaður er um morðið á hægrisinnuðum áhrifavaldi í september segjast þurfa að fara betur gegnum sönnunargögn þar sem margt virðist ekki stemma. Það á meðal annars við byssukúlu, riffil og lífsýni. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Tveir háttsettir liðsmenn Hezbollah sagðir drepnir í árásum á Beirút Markús Þ. Þórhallsson Ísraelsher segir tvo háttsetta liðsmenn Hezbollah liggja í valnum eftir tvær aðskildar loftárásir á líbönsku höfuðborgina Beirút. Íbúðahverfi í sunnanverðri Beirútborg. EPA / WAEL HAMZEH Herinn hefur ekki enn nafngreint mennina. Fréttamenn AFP og Reuters greina frá þungum árásum á Beirút og háværum sprengjugný. Sjúkrabílar eru sagðir á þönum um borgina. Heilbrigðisráðuneyti Líbanons segir minnst sjö hafa verið drepna og á þriðja tug særðan í loftárásum Ísraels á úthverfi í Beirút sunnanverðri í kvöld. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Vonar að Frakkland verði fyrst innan ESB til þess að banna samfélagsmiðla fyrir börn Frakklandsforseti vonast til þess að Frakkland verði fyrsta þjóð innan Evrópusambandsins til þess að setja á samfélagsmiðlabann fyrir 15 ára og yngri. Svipað bann hefur þegar tekið gildi í Ástralíu og Indónesíu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Bíll gerónýtur eftir bruna í Árbæjarhverfi Bifreið eyðilagðist í bruna í Árbæjarhverfi um miðnættið og önnur stórskemmdist. Slökkvistörf gengu vel að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Enginn var í hættu vegna eldsvoðans. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher verði farinn frá Íran „von bráðar“ Bandaríkjaforseti sagði á fundi í Hvíta húsinu í dag að bandarískar hersveitir lykju heraðgerðum í Íran von bráðar. Bandarískir hermenn yrðu farnir heim eftir tvær til þrjár vikur. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland 29 látnir eftir að rússnesk herflugvél fórst á Krímskaga 29 eru látnir eftir að rússnesk Antonov-26 herflugvél hrapaði á Krímsskaga í kvöld. Í tilkynningu frá rússneska varnarmálaráðuneytinu segir að allir innanborðs hafi farist með vélinni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Listi Framsóknar og annarra framfarasinna í Húnaþingi vestra birtur Ásrún Aldís Hreinsdóttir Aðsend Í dag var listi Framsóknar og annarra framfarasinna var samþykktur einróma á félagsfundi Framsóknar í Húnaþingi vestra í dag. Í tilkynningu segir að listinn sé skipaður hópi nýrra öflugra frambjóðenda. Nýr oddviti listans er Sigurður Líndal Þórisson, sviðsstjóri. Sigurður hefur víðtæka reynslu af störfum innan menningarheimsins. „Það er með stolti og af auðmýkt sem ég tek að mér að leiða þennan frábæra lista. Við erum mætt til að gera samfélaginu okkar gagn,“ segir Sigurður Líndal. Þessi skipa efstu sex sæti listans: Sigurður Líndal Þórisson Nína Axelsdóttir Dagrún Kristinsdóttir Ingveldur Linda Gestsdóttir Matthías Rúnarsson Magnús Ásgeir Elíasson Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Ekki hagsmunir barna að þau séu frelsissvipt í brottfararstöð Frumvarp dómsmálaráðherra um brottfarastöð hefur hlotið gagnrýni, meðal annars vegna heimildar til að vista þar börn. Umboðsmaður barna segir frumvarpið vera andstætt Barnasáttmálanum og brjóta gegn réttindum barna. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Enn sitja Ítalir eftir með sárt ennið Ítalska karlalandsliðið í fótbolta mætti Bosníu og Hersegóvínu í úrslitaleik um sæti á HM í kvöld. Þar rann HM-sætið úr greipum Ítala enn eina ferðina. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík tók sigur á Hlíðarenda Tveir leikir voru í úrslitakeppni kvenna í körfubolta í kvöld. Grindavík heimsótti Val á Hlíðarenda og gestirnir náðu sigri í leik þar sem lítið var skorað. Þá vann KR öruggan sigur á Keflavík. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 17 dvalarrými verða hjúkrunarrými í Brákarhlíð Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt að breyta megi 17 dvalarrýmum á Brákarhlíð í Borgarnesi í hjúkrunarrými. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mannlíf Hver er þessi dymbill? Píningarvika, helga vika og kyrravika - allt eru þetta heiti sem þessi vika, vikan fyrir páska, hefur borið í gegnum tíðina. Misjafnt er hvort fólk viti að hún á sér nafn sem hefur litla skírskotun til nútímans. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Ísland fékk á sig jöfnunarmark í blálokin Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lék annan æfingaleik sinn í Kanada. Eldingaveður setti strik í reikninginn en leikurinn hófst fyrir rest. Andstæðingur dagins var Haítí sem hefur tryggt sér sæti á HM. 31. mars 2026 kl. 20:22ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Stefnan tekin á tunglið á ný Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, stefnir á að senda mannaða geimflaug til tunglsins á morgun, í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. 31. mars 2026 kl. 20:15INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Hóf maraþonið korteri á eftir hinum Síðan heyrnarskimanir í upphafi grunnskólagöngu voru lagðar af 2012 hefur greiningum fækkað og óeðlilega mörg börn greinast seint. „Það breytir öllu að vita þetta,“ segir faðir barns sem greindist seint. 31. mars 2026 kl. 19:49INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál 110 ný hjúkrunarrými og nýr íbúi svaf eins og engill Mun létta talsvert á Landspítala. Ætlað til skammtímavistunar þar til fólk fær varanleg dvalarpláss á hjúkrunarheimilum. 31. mars 2026 kl. 19:04ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segir öðrum ríkjum að „sækja sér eigin olíu“ við Hormússund Forseti Bandaríkjanna fer hörðum orðum um ríki sem taka ekki þátt í hernaði hans gegn Íran. Glími þau við orkuskort eigi þau að fara og sækja olíuna, sem ekki er hægt að flytja um Hormússund. Stríðsmálaráðherrann útilokar ekki landhernað. 31. mars 2026 kl. 19:00INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Tugir heyrnarskertra barna ógreindir: „Það eru börn þarna úti sem þurfa aðstoð“ Börn með ógreinda heyrnarskerðingu eru talin skipta tugum. Börnum í eftirliti vegna skerðingarinnar hefur farið fækkandi síðan heyrnarskimunum í upphafi grunnskólagöngu var hætt árið 2012. Ógreind heyrnarskerðing getur haft neikvæð áhrif á líf barna. 31. mars 2026 kl. 18:19ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína SÞ telja ísraelsk lög um aftökur vera stríðsglæpi Dagný Hulda Erlendsdóttir Sameinuðu þjóðirnar segja að beiting laga, sem þing Ísraels samþykkti í gær, sé stríðsglæpur. Lögin mismuni fólki á grimmilegan hátt. Þá segir mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, að lögin fari gegn skuldbindingum Ísraels samkvæmt alþjóðalögum. Þingið samþykkti í gær að taka upp dauðarefsingu yfir þeim sem fremja það sem Ísraelar skilgreina sem mannskæð hryðjuverk. Lögin gilda þó aðeins um Palestínumenn. Samkvæmt lögunum skal fólk tekið af lífi með hengingu innan 90 daga frá dómsuppkvaðningu. Nokkur Evrópuríki hafa gagnrýnt lögin, sem og fjöldi mannréttindasamtaka, þar á meðal Amnesty International og Mannréttindavaktin. Efnt var til mótmæla gegn lögunum í Jerúsalem í dag. AP / Mahmoud Illean 31. mars 2026 kl. 18:12INNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Erlendir leigjendur borga meira fyrir minni íbúðir Erlendir leigjendur borga 14% hærri leigu en innlendir leigjendur þrátt fyrir að velja sér að jafnaði smærri íbúðir. Tekjulægri hópar eru ólíklegri til að eiga íbúð en áður. HMS hefur gefið út skýrslu um stöðuna á leigumarkaði. 31. mars 2026 kl. 17:25ERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Grænland og Ísland í miðju breyttra norðurslóða Valdajafnvægið á norðurslóðum breytist hratt og Ísland gæti orðið miðpunktur aukinnar athygli á næstu árum. Þetta segir danski hernaðarsérfræ