Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.4.2026 | 12:49 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Þegar framhaldsskólar og háskólar hefjast lengist ferðatíminn frá Hafnarfirði í HÍ um u.þ.b. 34 mínútur. mbl.is/Ómar Óskarsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Samgöngutafir eru rándýrar Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks „Þetta er þeirra ákvörðun og á þeirra ábyrgð“ Ístak og Per Aarsleff smíða Fossvogsbrú » Fleiri tengdar fréttir 75% vinnandi fólks á höfuðborgarsvæðinu notar einkabílinn í sínar ferðir. Mynstrið er aðeins annað þegar lýtur að nemendum en um 48% þeirra fara sinna ferða á bíl. Nemendur eru einnig stærsti hópurinn í umferðinni sem nýtir strætókerfið. Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá Eflu, segir að auðvitað sé æskilegt að nemendur haldi áfram að nota strætó í sem mestum mæli eftir að þeir ljúka námi og stíga út á vinnumarkaðinn. Mögulega er einnig tækifæri fyrir þennan hóp að nota hjólið í meiri mæli. Pétur Blöndal stýrði umræðum milli Gunnars Jónssonar frá Mörkinni lögmannsstofu, sem er í forsvari fyrir atvinnurekendur á Suðurlandsbraut, Árna Mathiesen, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi stjórnarformanns Betri samgangna, Þórarins Hjaltasonar samgönguvekfræðings og Bryndísar Friðriksdóttur, svæðisstjóra höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Bílum fjölgar í umferðinni um 50 á dag Daði flutti erindi á ráðstefnu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu með yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast! en að ráðstefnunni stendur Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu um mál sem eru efst á baugi í samfélaginu. Í erindi sínu ræddi Daði samhengið milli mældrar bílaumferðar, íbúafjölda og skráðra ökutækja í umferð. Sagði hann að það fjölgaði í samfélaginu um 80 manns í hverri viku. Á sama tíma fjölgar skráðum ökutækjum um 60 á viku og bílum í umferðinni um 50 á hverjum sólarhring. Sagði hann aðgengi að ferilgögnum þannig að í dag væri hægt að mæla m.a. alla umferð strætisvagna, deilifarartækja og hluta af umferð gangandi og hjólandi. Hann sagði að á síðasta ári hefði verið hægt að ferðast um 7 kílómetra á 15 mínútum sem er aðeins styttri vegalengd en árið áður. Sýndi hann einnig hvernig hægðist á umferð 30. október þegar snjóaði mikið og margir voru enn á sumardekkjunum en vildu samt komast í vinnu. Þá komst fólk aðeins 2,4 kílómetra á 15 mínútum. Frétt af mbl.is Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast „Þurfum við öll að vera á sama tíma?“ Daði skoðaði þá ferðaleiðina frá Hafnarfirði niður í Háskóla Íslands en leiðin telur um 10 kílómetra. Ferðin tekur í léttri umferð um 16 mínútur en á einni nóttu, þegar framhaldsskólar og háskólar hefjast lengist ferðatíminn um u.þ.b. 34 mínútur og það tekur fólk 50 mínútur að komast þessa sömu leið. Þegar grunnskólinn er byrjaður sagði hann í raun og veru það sama gerast og ferðatíminn lengist enn frekar. Samgönguverkfræðingurinn segir mikilvægt að fá fólk til að nýta sér aðra fararmáta en einkabílinn og þá veltir hann því upp hvort við þurfum öll að ferðast á sama tíma og hvort við getum farið færri ferðir. „Erum við að vinna nógu mikið heima hjá okkur? Erum við nógu mikið samferða? Getum við breytt eitthvað áfangastöðum? Þurfum við öll að vera á ferðinni á sama tíma? Allir framhaldsskólar og háskólar byrja á sama 20 mínútna tímabili. Það væri kannski áhugavert að prófa að hliðra þessum tímum gagnvart því að sjá hvort það sé einn liður til þess að létta á umferðinni?“ Þung umferð. mbl.is/Kristinn Magnússon Tengdar fréttir Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Samgöngutafir eru rándýrar Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Vegagerðin býður út verkhönnun Sæbrautarstokks „Þetta er þeirra ákvörðun og á þeirra ábyrgð“ Ístak og Per Aarsleff smíða Fossvogsbrú » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrír Bestudeildarslagir í bikarkeppninni 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Star chefs host exclusive pop-up dining experience at Geysir Velur Liverpool fram yfir Manchester United Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún vill sjálf dæma Samgöngutafir eru rándýrar „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Hrósað fyrir aðlögun að ESB Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Enginn úr meirihlutanum mætti Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri Nýjast á mbl.is » Þrír Bestudeildarslagir í bikarkeppninni 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ „Þá þyrfti að fá annan forsætisráðherra“ Star chefs host exclusive pop-up dining experience at Geysir Velur Liverpool fram yfir Manchester United Umræðan Hafnarfjörður þarf breytingar Kjósa samkvæmt sannfæringu annarra? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Kristrún vill sjálf dæma Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Mest lesið Í gær Í vikunni „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Kristrún vill sjálf dæma Borgin samþykkir 100 milljóna fatakaup Samgöngutafir eru rándýrar Dýrkeypt veikindahlutföll Enginn úr meirihlutanum mætti Segir fulltrúa ESB hafa komið af fjöllum Hitinn allt að 16 stigum Beint: Greiðari leið – hugmyndir óskast Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Maðurinn fannst látinn við Háafoss Stórfelld líkamsárás: Tveir handteknir Minnast Íslendingsins í Danmörku Inga tjáir sig um mögulega inngöngu í ESB Langar raðir vegna bilunar á landamærahliðum Hugnast ekki orðræðan og afþakkar boðið Grunur um samverknað Mannabreytingar hjá Sjálfstæðisflokknum Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Með ólíkindum að hún hafi látið þetta út úr sér“ Furðar sig á því að Íslendingar séu ekki áhyggjufyllri

Share this article