Fundur um umferðarmál á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn kl. 09:00 í dag við Hilon á Suðurlandsbraut. Markmið þessa klukkutíma fundar er að stuðla að upplýstri umræðu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Efnt verður til samtals um hugmyndir og lausnir sem til þess eru fallnar að greiða úr umferð á höfuðborgarsvæðinu fyrir alla fararmáta. Þá verður leitað svara hjá oddvitum flokkanna við því hvaða viðhorf þeir hafa til samgöngumála á höfuðborgarsvæðinu. Að fundinum stendur Hugvekjan, sem hefur að markmiði að stuðla að opnu samtali og upplýstri umræðu um mál sem eru efst á baugi í samfélaginu. Fundurinn er haldinn undir yfirskriftinni Greiðari leið – hugmyndir óskast og er hægt að horfa á hann í beinu streymi hér: