Innlent | Morgunblaðið | 14.3.2026 | 9:04 Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mikill umferðarþungi er á álagstímum á höfuðborgarsvæðinu og rétt væri að dreifa álaginu. mbl.is/Árni Sæberg Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Dæmi eru um að ferðatími fólks á höfuðborgarsvæðinu á morgnana lengist um 30 mínútur á mestu álagspunktum þegar framhalds- og háskólar hefjast á haustin. Brýnt er að ráðast í breytingar og vinda ofan af þessari þróun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Eflu um álagsdreifingu umferðar á höfuðborgarsvæðinu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Skýrslan á að vera innlegg í vinnu við að draga úr umferðartöfum á annatímum, bæta nýtingu núverandi innviða og auka hlutdeild vistvænna ferðamáta samhliða framkvæmdum samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Í skýrslunni hefur ferðatími á milli Hafnarfjarðar og Háskóla Íslands á milli 7 og 10 á morgnana verið greindur. Kemur þar skýrt fram að á sumrin tekur ferðin undir 20 mínútum um klukkan átta á morgnana en þegar hausta tekur og skólarnir hefjast fer sama ferð upp í 50 mínútur. Staðan er jafnvel verri á leiðinni frá Korpu og niður í HÍ. Klukkan átta á morgnana er fólk um 20 mínútur á leiðinni á sumrin en ferðatíminn fer upp í 55 mínútur þegar verst lætur. Skýrsluhöfundar rekja að eftir að staðan hafi verið metin hafi verið teknar saman mögulegar aðgerðir til að stuðla að betri álagsdreifingu umferðar. Það var gert eftir að 30 fulltrúar frá stofnunum, fyrirtækjum, framhaldsskólum, háskólum og sveitarfélögum tóku þátt í vinnustofu haustið 2025. Helstu tækifæri voru talin snúa að aðgerðum er lúta að svokallaðri fleytitíð, það er opnunartíma stofnana og ferðavenjum nemenda og starfsmanna. Rakið er að mikil bílaumferð myndist á stofnvegakerfinu á skömmum tíma af þeirri einföldu ástæðu að allir grunn-, framhalds- og háskólar á höfuðborgarsvæðinu hefjist á sama 20 mínútna tímabilinu frá kl. 8.10 til 8.30. Misjafnt er hver opnunartími stofnana og fyrirtækja er en algengt sé að hann sé frá 9-16. Horft var til þess að seinkun skóladags gæti skarast við frístundaiðkun og fleira en niðurstaða samráðs var þó að mögulegt væri að skoða nánari útfærslur fyrir skóla og opinberar stofnanir. Erfiðara væri hins vegar að hafa áhrif á opnunartíma fyrirtækja. Meðal þess sem lagt er til er að skoða að framhalds- og háskólar hefji kennslu á milli 8.45 og 9 í stað 8.10-8.30. Þá er horft til þess að skoða ferðamáta námsmanna og hvetja til breytinga á þeim. Lagt er til að útfært verði nemendakort í strætó sem myndi fylgja skráningu nemenda á framhalds- og háskólastigi. Er þar horft til fyrirmynda að utan, til að mynda frá Vancouver í Kanada. „Talið er að þessi aðgerð geti stuðlað að aukinni notkun framhalds- og háskólanema á strætó líkt og dæmi sýna erlendis frá. Aðgerðin er í senn fjárhagslegur hvati fyrir þennan hóp þar sem ráðstöfunartekjur námsmanna eru venjulega lægri en hjá fólki á vinnumarkaði. Langtímaáhrif af þessari aðgerð gætu líka verið jákvæð þar sem regluleg notkun strætó á menntagöngu ungs fólks gæti stuðlað að því að það haldi því áfram eftir útskrift,“ segir í skýrslunni. Meðal annarra ráðstafana sem lagt er til að verði skoðaðar eru gjaldtaka á bílastæðum við menntastofnanir, fræðsla um hjólanotkun í skólum og að hjólainnviðir við skóla verði bættir. Þá þykir tímabært að endurskoða samgöngusamninga sem hafi verið nær óbreyttir frá því þeir voru kynntir til sögunnar hér á landi. Lagt er til að hækka skattleysismörk í því tilliti sem og að auka sveigjanleika. Eins ætti að auðvelda vinnustöðum að bjóða upp á fjölbreytta samgöngustyrki. Bílastæði vinnustaða Gjaldtaka Í skýrslunni er lagt til að skoðað sé að taka gjald fyrir notkun bílastæða á vinnustöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem horft er til reynslu hérlendis og erlendis. Lagt er til að skoða hvernig æskilegt er að útfæra gjaldskyldu við opinberar stofnanir og skrifstofur sveitarfélaga en hægt er að miða við að gjaldskylda sé innleidd fyrir starfsstöðvar með yfir 50 eða 100 starfsmenn. Mælst er til þess að gjaldtakan miðist við daglega notkun í stað mánaðarlegrar áskriftar og að upphæðin sé ekki of há. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Birgir Örn Guðjónsson: Einföld lausn ! Nýjast á mbl.is » Himnalón í Húsi málarans Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Voru reknar fyrir að skella sér á djammið Íslensk tónlistarveisla í Texas Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Yfir eitt þúsund árásir á dag Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvessir á landinu í nótt Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Himnalón í Húsi málarans Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Voru reknar fyrir að skella sér á djammið Íslensk tónlistarveisla í Texas Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir verðmiðann slá sig sem háan Lentu í vandræðum uppi á jökli Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvessir á landinu í nótt Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar