Innlent | Morgunblaðið | 25.4.2026 | 9:00 | Uppfært 9:15 Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Á fundinum á þriðjudag verður vandinn rýndur á hlutlausan hátt. mbl.is/Hari Ásgeir Ingvarsson [email protected] Setja bókamerki Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að þyngjast jafnt og þétt og segir Pétur Blöndal rannsóknir hafa leitt í ljós að tafirnar hafi aukist svo mikið að hinn dæmigerði borgarbúi geti vænst þess að vera 92 stundum lengur í umferðinni ár hvert. „Þetta er sá tími sem fer í það að sitja fastur í umferð og bætist ofan á ferðatímann. Ef við mælum hann út frá því hvenær við förum í vinnuna og hvenær við komum heim aftur þurrkast þar út rúmar tvær vinnuvikur á mann á ársgrundvelli.“ Að sögn Péturs varðar það miklu fyrir verðmætasköpun og afköst að fólk og varningur komist hratt og vel á milli staða. „Greiðari samgöngur draga úr vinnutapi, lækka flutningskostnað og stuðla að meiri framleiðni, og allt ýtir þetta undir hagvöxt og eykur samkeppnishæfni.“ Pétur er einn skipuleggjenda fundar sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica á þriðjudagsmorgun undir yfirskriftinni Greiðari leið – Hugmyndir óskast! Viðburðurinn er haldinn að frumkvæði Hugvekjunnar, sem er nýstofnaður hópur áhugafólks um upplýsta samræðu um þjóðfélagsmál. Eins og yfirskrift fundarins gefur til kynna er ætlunin ekki að setja fram endanlega lausn á samgönguvandanum heldur skoða ólíka valkosti á yfirvegaðan, hlutlausan og vandaðan hátt. Pétur bendir á að samgönguvandi höfuðborgarsvæðisins sé flókið viðfangsefni og það liti umræðuna um málaflokkinn að fólk festist í skotgröfum. „Það virðist sérstaklega algengt að umræðan taki á sig þá mynd að aðeins ein lausn geti virkað og aðrar ekki, eða að ein hugmyndafræði eigi að ráða sem allir þurfi að aðlagast. Það veitir ekki af að leggjast vandlega yfir þetta svið og freista þess að vega og meta kosti og galla allra valkosta.“ Gögn og greining Dagskráin hefst kl. 9 með inngangserindi Konráðs Guðjónssonar hagfræðings þar sem farið verður yfir þróun samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Næst tekur til máls Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur hjá Eflu, og fjallar um hvað umferðartölurnar sýna. Í framhaldinu fara fram pallborðsumræður með Suðurlandsbrautina í forgrunni, en þar leggja orð í belg Árni M. Mathiesen, fyrrverandi stjórnarformaður Betri samgangna, Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, Gunnar Jónsson, hrl. og málsvari fasteignaeigenda við Suðurlandsbraut, og Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur. „Við fáum líka í pontu Anders Palm, sérfræðing hjá Swarco Technologies í Danmörku, sem er leiðandi á heimsvísu í snjallljósa- og umferðarstýringum. Hann mun m.a. fjalla um hvaða nýjungar í umferðarstýringu gætu komið að gagni til að greiða úr flækjunni, auk þess að koma með dæmisögur frá hinum ýmsu borgum.“ Í lok fundar taka stjórnmálamennirnir við keflinu og hefur oddvitum sex stærstu framboðanna í Reykjavík verið boðið að deila sinni sýn og leggja línurnar. Hugvekjan hefur einnig tekið viðtöl við oddvita allra framboða á höfuðborgarsvæðinu í komandi sveitarstjórnarkosningum og verða þau m.a. birt á samfélagsmiðlum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Í umferðarteppu í 92 klukkustundir „Þá fór allt í skrúfuna“ Úr Ólíkum áttum: Pólitíkin má ekki bera stjórnmálin ofurliði Bandaríkin leiti leiða til að „bjarga andlitinu“ Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Í umferðarteppu í 92 klukkustundir Heimsókn konungsins muni endurreisa sambandið Minntist ekki á varanlegar undanþágur „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Mér finnst þetta fáránlegt“ Hundurinn þarf hvíldarinnlögn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Takast á um virkjunarkosti Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Fólk þurfi að vera hrætt Nýjast á mbl.is » Í umferðarteppu í 92 klukkustundir „Þá fór allt í skrúfuna“ Úr Ólíkum áttum: Pólitíkin má ekki bera stjórnmálin ofurliði Bandaríkin leiti leiða til að „bjarga andlitinu“ Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Umræðan Verkin sýna merkin Tungutak eyjamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hjón á áttræðisaldri drepin í drónaárás Veltihringrásin nálgast vendipunkt Ekið á konu á gangi við Skógarveg Hafa hótað og áreitt starfsfólk Mest lesið Í gær Í vikunni Sakar formanninn um leyndarhyggju Vendinga að vænta í veðrinu „Við erum að fara að semja um aðildarsamning“ „Mér finnst þetta fáránlegt“ Hundurinn þarf hvíldarinnlögn Kólnar allmikið og búast má við snjóéljum Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Takast á um virkjunarkosti Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Aðild geti styrkt öryggi Íslands í víðum skilningi Vendinga að vænta í veðrinu Lögreglan leggur línurnar varðandi nagladekkin Íslendingur fær ekki íslenskt ríkisfang Földu mikið magn fíkniefna í tveimur leynihólfum Neituðu að hafa skírt dótturina eftir Sigur Rós Innkalla hakk vegna gruns um salmonellu Sjálfstæðisflokkur stekkur frá Samfylkingu Ekið á gangandi vegfaranda Gríðarlegar tafir eru rannsóknarefni Hafa hótað og áreitt starfsfólk Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Vendinga að vænta í veðrinu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Sérsveitin kölluð út á Akureyri Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Hiti gæti náð allt að 20 stigum Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Hefja gjaldtöku við Egilshöll Fólk þurfi að vera hrætt