Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Glódís Perla slær landsleikjametið á laugardag

Read Full Article →

Glódís Perla, sem er þrítug, lék sinn fyrsta A-landsleik árið 2012 í vináttuleik gegn Skotlandi. Hún byrjaði inná og Ísland hélt hreinu og vann 1-0. Markið skoraði Sandra María Jessen, sem er einmitt sú eina úr leikmannahópi Íslands í þessum leik sem enn er í liðinu. Síðan þá hefur Glódísi Perlu varla fallið verk úr hendi. Hún varð árið 2013 fastamaður í vörninni hjá íslenska liðinu og hefur verið síðan. Eltir forvera sína uppi eina af annarri Þegar Glódís Perla varð fastamaður í vörn Íslands leysti hún Katrínu Jónsdóttur af hólmi þegar hún lagði skóna á hilluna. Þá var Katrín fyrirliði og leikjahæst í sögu liðsins með 133 leiki. Sara Björk Gunnarsdóttir varð síðar fyrirliði og sló svo leikjamet Katrínar í október 2020. Alls urðu landsleikir Söru Bjarkar 145. Glódís Perla tók við fyrirliðabandinu af Söru Björk þegar hún lagði landsliðsskónum sumarið 2022. Met Söru Bjarkar jafnaði Glódís Perla svo á þriðjudag í sigrinum á Úkraínu og metið fellur að óbreyttu á laugardag. Nær hún 200 leikjum? Glódís Perla er enn aðeins þrítug. Það er enginn aldur á fótboltakonu í dag. Til samanburðar var Sara Björk 32 ára þegar hún hætti með landsliðinu, og er enn að spila fótbolta í dag, og Katrín var 36 ára þegar hún hætti að spila. Haldist Glódís Perla heil næstu árin er ekkert endilega því til fyrirstöðu að hún geti náð 200 landsleikjum. Á þeim 13 árum sem hún hefur verið í landsliðinu hefur hún spilað 12 landsleiki að jafnaði á ári. Haldist sá leikjafjöldi nokkurn veginn næstu ár þá tekur það fimm ár til viðbótar að ná 200 leikja markinu. Augljóslega hefur enginn náð því takmarki í íslenskum fótbolta og aðeins 30 konur í sögunni á heimsvísu.

Share this article