Það skýrist í dag hvort Glódís Perla Viggósdóttir komist í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Þá lýkur undanúrslitum keppninnar með seinni leik Barcelona og Bayern München. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Þýskalandi um síðustu helgi og var Glódís Perla á sínum stað í vörn Bayern. Undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta lýkur í dag þegar Barcelona tekur á móti Glódísi Perlu Viggósdóttur og liðsfélögum hennar í Bayern München í beinni útsendignu á RÚV. Sigurvegarinn kemst í úrslitaleikinn gegn Lyon. Tugir þúsunda áhorfenda Ljóst er að Glódísar og félaga bíður strembið verkefni í dag því þessi seinni leikur liðanna fer fram fyrir framan tugi þúsunda áhorfenda á Camp Nou í Barcelona. Fyrr í vikunni höfðu 42 þúsund miðar þegar verið seldir á leikinn. Leikvangurinn tekur núna 62 þúsund áhorfendur. Leikur Barcelona og Bayern München hefst klukkan 14:30 og verður hann sýndur beint á RÚV. Sigurliðið kemst í úrslitaleikinn gegn franska stórveldinu Lyon sem sló ríkjandi Evrópumeistara Arsenal úr leik í gær. Lyon er sigursælasta lið keppninnar með átta titla.