Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt jafnt hjá Glódísi og félögum í einvíginu við Barcelona

Read Full Article →

Glódís Perla Viggósdóttir og liðsfélagar hennar í Bayern München mættu Barcelona í fyrri undanúrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í dag. Spænska liðið byrjaði vel og liðið komst yfir á áttundu mínútu með marki frá Ewa Barbara Pajor. Bæjarar unnu sig betur og betur inn í leikinn eftir því sem leið á fyrri hálfleik en staðan var engu að síður óbreytt í leikhléi, 1-0 fyrir Börsunga. Kett í banni í næsta leik Fransizka Kett jafnaði metin fyrir Bayern á 69. mínútu þegar hún fékk stoðsendingu frá Pernille Mosegaard Harder, allt jafnt 1-1. Á 80. mínútu fékk Kett að líta rauða spjaldið fyrir hártog. Hún verður því í banni í leik liðanna eftir viku sem er afar dýrkeypt fyrir Bæjara enda var hún meðal sterkari leikmanna liðsins í dag. Barcelona sótti stíft að marki Bayern undir lokin en tíu Bæjörum tókst að halda út og 1-1 jafntefli varð niðurstaðan. Það er því allt jafnt fyrir síðari viðureign liðanna þegar sæti í úrslitum verður í boði. Liðin mætast í Barcelona sunnudaginn 3. maí klukkan 14:15. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV.

Share this article