Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bónus og Hag­kaup lækka verð eftir sam­starf við danskan risa

Read Full Article →

Hagar hafa hafið inn­kaupa­sam­starf við danska smásölu­fyrir­tækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dag­vöru­markaði í Dan­mörku, og segja for­svars­menn félagsins að sam­starfið muni leiða til lægra verðs á hundruðum vara í Bónus og Hag­kaupi. Þá er einnig stefnt að auknu vöruúr­vali og bættum gæðum í verslunum félagsins. Fram kemur í til­kynningu frá Högum að með sam­starfinu fái Bónus og Hag­kaup að­gang að breiðu vöruúr­vali frá Salling Group, sem rekur meira en 2.100 verslanir í Dan­mörku, Þýska­landi, Póllandi og Eystra­salts­löndunum. Á meðal þekktustu verslunar­keðja félagsins eru Netto, Føtex og Bilka, auk þess sem það rekur Rimi-verslanir í Eystra­salts­löndunum. Sam­kvæmt til­kynningunni eru fyrstu vörurnar þegar komnar í hillur hjá Bónus og Hag­kaupi og mun úr­valið stækka hratt á næstu mánuðum. Gert er ráð fyrir að fleiri en þúsund vörunú­mer verði komin í sölu innan nokkurra mánaða. Um er að ræða vörur undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Bud­get, sem Hagar segja þekktar fyrir gott verð, fjöl­breytni og gæði. Í til­kynningunni segir einnig að margar vörurnar beri viður­kenndar gæða­vottanir og næringar­merkingar sem þekkjast vel á Norður­löndunum, þar á meðal Lykilinn, danska Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna um­hverfis­merkið Svaninn. Auk Bónuss og Hag­kaups nær sam­starfið einnig til Olís að því leyti að verslanir undir merkjum Haga fá að­gang að nýju og fjöl­breyttu úr­vali sem hefur notið vinsælda í nágranna­löndunum. Finnur Odds­son, for­stjóri Haga, segir sam­starfið vera stærsta skref sem félagið hafi stigið í inn­kaupamálum í ára­tugi og að það marki þátta­skil í mat­vöru­verslun á Ís­landi. Að hans sögn muni sam­starfið annars vegar skila neyt­endum lægra verði á hundruðum vara og hins vegar auknu úr­vali af vörum af miklum gæðum. Hann segir jafn­framt að Hagar séu stoltir af því að geta lagt sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu. Anders Hagh, for­stjóri Salling Group, segir danska félagið afar ánægt með sam­starfið og sjá í því mikil tækifæri. Hann segir bæði félög leggja ríka áherslu á fjöl­breytt vöruúr­val og sam­keppnis­hæf verð og að Salling muni gera allt sem í þess valdi stendur til að standa undir því trausti sem Hagar sýni með sam­starfinu.

Share this article