Viðskipti | mbl | 16.4.2026 | 11:00 Lækka verð á hundruðum vara Fyrstu vörurnar eru nú þegar komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup. Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir einnig að samstarfið bjóði upp á fjölda tækifæra og geri Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval og enn meiri gæði en fyrr í verslunum félagsins. Með samstarfinu fá verslanir Bónus og Hagkaups m.a. aðgang að breiðu vöruúrvali Salling Group, en félagið rekur yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku rekur félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, føtex og Bilka auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum. Vörur frá Salling Group. Fyrstu vörurnar eru nú þegar komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup samkvæmt tilkynningunni en úrvalið mun aukast ört á næstu mánuðum og verða fleiri en þúsund vörunúmer í boði innan nokkurra mánaða. „Vörurnar sem um ræðir eru m.a. undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget — vörulínur sem eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval og mikil gæði. Fjöldinn allur af vörum Salling ber viðurkenndar gæðavottanir og næringarmerkingar sem þekkjast vel á Norðurlöndunum, svo sem Lykillinn, Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna umhverfismerkið Svanurinn,“ segir í tilkynningunni. Finnur Oddsson forstjóri Haga. María Matthíasdóttir Markar þáttaskil „Það hefur ávallt verið keppikefli okkar að ná árangri í innkaupum og tryggja þannig viðskiptavinum sem allra best vöruverð. Samstarf okkar við Salling er stærsta skref sem við höfum stigið á þessu sviði í áratugi og markar þáttaskil í matvöruverslun á Íslandi. Salling hefur ákveðna yfirburði á danska markaðnum, hvað varðar stærð, innkaupagetu og fjölbreytni vörulína, en samstarfið veitir okkur aðgang að fjölbreyttu vöruúrvali sem þekkist víða í Evrópu. Fyrir neytendur á Íslandi þýðir þetta annars vegar lægra verð á hundruðum vara og hins vegar aukið úrval af vörum af miklum gæðum. Við erum stolt af því að geta lagt okkar enn frekar af mörkum í baráttunni við verðbólguna, sem hefur sjaldan verið mikilvægara en nú,“ segir Finnur Oddsson forstjóri Haga í tilkynningunni. Leiðandi á markaði „Við erum afar ánægð með samstarfið við Haga og sjáum í því mikil tækifæri. Hagar eru, líkt og Salling Group, leiðandi fyrirtæki á sínum markaði og leggja ríka áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytt vöruúrval og samkeppnishæf verð. Ég vil þakka Högum það traust sem þau sýna okkur og legg áherslu á að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa undir því, til hagsbóta fyrir neytendur á Íslandi,“ segir Anders Hagh forstjóri Salling Group í tilkynningunni. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Kerfið misnotað: „Enginn hér er samkynhneigður“ Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samruna Arion og Kviku Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Ekki verður af samruna Arion og Kviku Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Íslandsbanki stofnar gervigreindarfélag Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Ekki verður af samruna Arion og Kviku Minnka flækjustigið við greiðslur Jóhann Ingi til Securitas Pistlar » Sigurður Már Jónsson Lagos: Strandbær með sögu Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Óhjákvæmilegir vaxtarverkir Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samruna Arion og Kviku Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Ekki verður af samruna Arion og Kviku Gera samning við bandarískan dýrafóðursrisa Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Fólkið verði sterkasti hlekkurinn Jóhann Ingi til Securitas Fyrrum forstjóri IKEA á velsældarþingi Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Rekstrarniðurstaða Garðabæjar jákvæð um 2,8 milljarða Íslandsbanki stofnar gervigreindarfélag Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Sumarbústaðir áfram vinsælir 75% Íslendinga vilja nýja staði Laun hér þau hæstu í Evrópu Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Skora þekkt bókhaldskerfi á hólm Ekki verður af samruna Arion og Kviku Minnka flækjustigið við greiðslur Jóhann Ingi til Securitas