Dregið verður í riðla Evrópumóts kvenna í handbolta í Katowice í Póllandi kl. 16 í dag. Ísland er með á mótinu og verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki. Mótið fer fram í Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi 3.-20. desember. 24 þjóðir keppa á mótinu og er styrkleikaflokkarnir fjórir. Ísland er í styrkleikaflokki með Króatíu, Serbíu, Norður-Makedóníu, Úkraínu og Grikklandi og getur því ekki lent í riðli með neinni þeirra. Sex riðlar eru á mótinu og hefur gestgjafaþjóðunum fimm þegar verið raðað í einn riðil hverri. Ungverjar eru svo öruggir með að vera í A-riðli sem er leikinn í Oradea í Rúmeníu, sem er við ungversku landamærin. Riðlakeppni EM hefst 3. desember og lýkur sex dögum síðar. Þá tekur milliriðlakeppnin við til 16. desember og svo er leikið í undanúrslitum og úrslitum 18. og 20. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er með á EM og annað mótið í röð. Síðast varð Ísland í 16. sæti eftir sigur gegn Úkraínu en tap gegn Hollandi og Þýskalandi.