Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland mætir Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu á EM

Read Full Article →

Ísland verður í A-riðli á EM kvenna í handbolta sem hefst 3. desember. Mótherjar Íslands verða Ungverjaland, Svartfjallaland og Slóvenía. Ísland var einnig með Svartfjallalandi í undankeppninni og liðin unni hvort sinn leikinn innbyrðis þar. 24 þjóðir keppa á mótinu og voru styrkleikaflokkarnir fjórir. Ísland var í neðsta styrkleikaflokki með Króatíu, Serbíu, Norður-Makedóníu, Úkraínu og Grikklandi og gat því ekki lent í riðli með neinni þeirra. Sex riðlar eru á mótinu og var gestgjafaþjóðunum fimm (Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Tyrklandi) raðað í einn riðil hverri. Ungverjar voru svo öruggir með að vera í A-riðli sem er leikinn í Oradea í Rúmeníu, sem er við ungversku landamærin. Ísland er því í eina riðlinum sem engin gestgjafa þjóð er í. Riðlakeppni EM hefst 3. desember og lýkur sex dögum síðar. Þá tekur milliriðlakeppnin við til 16. desember og svo er leikið í undanúrslitum og úrslitum 18. og 20. desember. Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er með á EM og annað mótið í röð. Síðast varð Ísland í 16. sæti eftir sigur gegn Úkraínu en tap gegn Hollandi og Þýskalandi.

Share this article