Heimaþjóðirnar, Spánn, Portúgal og Sviss komast beint á mótið en einnig Danmörk, sem sigurvegari síðasta Evrópumóts. Alls voru 32 þjóðir í pottinum og Ísland í efsta styrkleikaflokki af fjórum. Í hverjum styrkleikaflokki eru átta lið. Fyrst voru þjóðirnar í styrkleikaflokki tvö dregnar og þar kom Serbía upp úr hattinum í riðli Íslands. Því næst var komið að styrkleikaflokki fjögur og þar var það Eistland. Í þriðja styrkleikaflokki er það svo Úkraína sem kemur til með að deila riðli með Íslandi. Svona er riðill Íslands: Ísland Serbía Úkraína Eistland Hvað með íslensku þjálfarana? Dagur Sigurðsson og Króatía enduðu í riðli með Hollandi Litáen og Finnlandi og Alfreð Gíslason og Þjóðverjar spila við Ítalíu, Belgíu og Slóvakíu.. Ísland, Króatía og Þýskaland eru öll í efsta styrkleikaflokki enda voru liðin öll í undanúrslitum síðasta Evrópumóts. Undankeppnin fer af stað í nóvember og lýkur í maí á næsta ári. Útsendinguna má sjá hér að neðan. Í dag verður dregið í riðla í undankeppni Evrópumóts karla í handbolta 2028. Ísland endaði í riðli með Eistlandi, Úkraínu og Serbíu. Þá er einnig ljóst hvernig leiðin verður hjá Degi Sigurðssyni og Alfreð Gíslasyni. Svona eru styrkleikaflokkarnir Flokkur 1 Frakkland Ísland Króatía Noregur Slóvenía Svíþjóð Þýskaland Ungverjaland Flokkur 2 Austurríki Færeyjar Holland Ítalía Norður-Makedónía Pólland Serbía Tékkland Flokkur 3 Belgía Bosnía & Herzegóvína Georgía Grikkland Litáen Rúmenía Svartfjallaland Úkraína Flokkur 4 Eistland Finnland Ísrael Kósovó Lettland Lúxemborg Slóvakía Tyrkland