- What: Iceland faces Montenegro in a Euro 2026 women's handball qualifier
- Impact: No security relevance
Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM kvenna í handbolta ytra í dag klukkan 17. Ísland tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum í riðlinum, fyrir Færeyjum og Portúgal á meðan Svartfellingar unnu fyrstu tvo leikina sína. Það kom því verulega á óvart að Ísland skyldi skella toppliði riðilsins í leik liðanna sl. miðvikudag. Ennþá mikill munur á heimavelli og útivelli „Það má alveg búast við þeim grimmum á sínum heimavelli. Við þurfum að ná upp sama orkustigi og berjast við þær,“ Arnar Pétursson landsliðsþjálfari Íslands. Hann býst við Svertfellingum sterkari í dag og segir að það sé ennþá mikill munur á því í nútímahandbolta að spila leik á heimavelli og útivelli. „Það er það auðvitað. Það er betra að spila fyrir framan sitt fólk, það er engin spurning. En við vitum líka alveg að svon gott lið vill sýna að tapið á Íslandi var ekki það sem þær ætluðu sér. Þær koma klárlega grimmari til leiks. Það reynir á okkur að halda dampi. Við ætlum að njóta þess alla leið til Podgorica að hafa gert vel. Ef við mætum af sama krafti í þennan leik þá er allt hægt.“ Ísland heimsækir Svartfjallaland í undankeppni EM kvenna í handbolta í dag. Svartfellingar eru á toppi riðilsins og töpuðu óvænt á Íslandi í vikunni. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari segir forföll í íslenska liðinu orðin „fullmikið af því góða“. Full mikið af því góða Arnar hefur lent í því fyrir hvern leik í þessari undankeppni að þurfa að gera breytingar og púsla saman nýju liði og það heldur áfram. Til að byrja með er íslenska liðið að ganga í gegnum kynslóðaskipti og fjölmargar reyndar landsliðskonur lögðu skóna á hilluna. Þá urðu landsliðskonurnar Katrín Tinna Jensdóttir og Hafdís Renötudóttir báðar eftir heima á Íslandi og fóru ekki með til Svartfjallalands því þær fengu báðar höfuðhögg í leik liðanna á miðvikudag. Já, þetta er búið að vera fullmikið af því góða en bara frábært hvernig stelpurnar svara þessu. Í stað Katrínar Tinnu fór Alexandra Líf Arnarsdóttir til Svartfjallalands og Ethel Gyða Bjarnasen, markvörður Fram. Ethel hefur ekki spilað landsleik. Alexandra var að vísu í hópnum á miðvikudag vegna meiðsla Theu Imani Sturludóttur og Ölfu Brár Hagalín. Talsverð skakkaföll eru því í hópnum en Díana Dögg Magnúsdóttir hefur bæst við líka. Hún gat ekki tekið þátt í fyrri leiknum þar sem lokapróf í meistaranámi hennar fara fram þessa dagana og ekki var hægt að hnika þeim til. Í fjarveru Díönu og Theu var hallæri á örvhentum skyttum en það kom þó ekki að sök í fyrri leiknum gegn Svartfellingum. Leikur Svartfjallalands og Íslands hefst klukkan 17 í dag í beinni útsendingu á RÚV. Upphitun hefst í Stofunni klukkan 16:35.