- What: Football match result between Afturelding and Ými
- Impact: Sports news for fans of Icelandic football
Afturelding fór áfram í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta með sigri á Ými. Ýmismenn komust yfir snemma leiks en Afturelding vann að lokum 6-1 sigur. Ýmir er í 4. deild en Afturelding í 1. deild. Breki Ottósson kom Ými yfir á 18. mínútu en AFtureldingarmenn skoruðu þrjú mörk rétt fyrir hálfleik. Joacim Holtan skoraði á 41. mínútu og þeir Elmar Kári Enesson Cogic og Óðinn Bjarkason skoruðu sitt hvort markið. Staðan því 3-1 í hálfleik. Joacim Holtan bætti svo við sínu öðru marki á 55. mínútu. Bart Kooistra bætti fimmta markinu við á 78. mínútu. Róbert Agnar Daðason rak svo smiðshöggið með marki á 86. mínútu. Þá stendur leikur Tindastóls gegn Njarðvíkur yfir og enn er markalaust þegar skammt er eftir af venjulegum leiktíma. Mörkin úr sigri Aftureldingar má sjá hér að neðan. 32-liða úrslit bikarkeppni karla í fótbolta héldu áfram í með tveimur leikjum. Aftureldign vann Siglingarfélagið Ými 6-1 en Ýmismenn komust þó yfir. Þá stendur leikur Tindastóls gegn Njarðvíkur yfir.