- What: Icelandic football team updates
- Impact: Sports-related information
Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson hefur verið kallaður inn í íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Daníel Leó Grétarsson hefur dregið sig úr hópnum vegna meiðsla. Fram undan eru æfingaleikir gegn Haítí og Kanada. Bæði lið munu leika á HM 2026 næsta sumar en leikið verður í Toronto í Kanada. Ísland leikur gegn Kanada 28. mars og Haítí 31. mars. Daníel hefur verið fastamaður í landsliði Arnars Gunnlaugssonar hingað til en meiddist í leik með Sönderjyske gegn Nordsjælland í dönsku deildinni. Hjörtur er 31 árs gamall og leikur með Volos í Grikklandi. Hann á að baki 28 landsleiki.