Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Chelsea slapp með skrekkinn gegn Hollywoodliðinu

  • What: Football match between Chelsea and Wrexham
  • Impact: Sports event coverage
Read Full Article →

Þrír leikir eru spilaðir í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Þessi frétt var uppfærð eftir leik Wrexham og Chelsea. Úrvalsdeildarliðið Chelsea heimsótti Wrexham sem er í 6. sæti ensku b-deildarinnar. Uppgangur Wrexham hefur verið mjög hraður og liðið á góðan möguleika á að komast í úrslitakeppni deildarinnar um að komast upp í úrvalsdeildina. Frá árinu 2023 hefur Wrexham farið upp um þrjár deildir á þremur tímabilum í röð. Eigendur liðsins eru bandarísku Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney. Þeir keyptu félagið árið 2021 fyrir um 2 milljónir punda. Wrexham náði forystunni gegn Chelsea með marki Sam Smith á 18. mínútu. Chelsea jafnaði á 40. mínútu með sjálfsmarki Arthur Okonkwo, markvarðar Wrexham sem endurheimti þó forystuna á 79. mínútu þegar Callum Doyle fékk boltann í sig eftir skot frá samherja. Þremur mínútum síðar skoraði Josh Acheampong og jafnaði fyrir Chelsea í 2-2. Wrexham missti George Dobson af velli með rautt spjald í uppbótartíma eftir að myndbandsdómarar sendu dómarann í skjáinn en hann hafði áður sýnt honum gula spjaldið fyrir brot á Alejandro Garnacho. 2-2 var staðan að loknum venjulegum leiktíma svo grípa þurfti til framlengingar en Alejandro Garnacho kom Chelsea yfir á 97. mínútu, 2-3. Þegar komið var fram á 114. mínútu tókst Lewis Brunt að koma boltanum í mark Chelsea en myndbandsdómarar leyfðu markinu ekki að standa þar sem Brunt var naumlega rangstæður. Wrexham reyndi að ná jöfnunarmarki en þess í stað skoraði Joao Pedro á fimmtu mínútu uppbótartíma framlengingarinnarog breytti stöðunni í 2-4. Það urðu lokatölur og Chelsea fer áfram í 8-liða úrslit en Wrexham er úr leik eftir hetjulega baráttu. Tveir 16 ára í byrjunarliði Arsenal Topplið úrvalsdeildarinnar, Arsenal, sótti þriðjudeildarliðið Mansfield Town heim. Mansfield er í fallbaráttu í C-deildinni. Arsenal byrjaði leikinn með tvo 16 ára peyja í liðinu; þá Max Dowman og Marli Salmon, fædda 2009. Mansfield sló Burnley og Sheffield United út á leið sinni í 16-liða úrslitin en var án fyrirliða síns Ryan Sweeney í dag sem er meiddur. Noni Madueke skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 40. mínútu og kom Arsenal í 1-0 sem var staðan í hálfleik. William Evans var þó fljótur að jafna fyrir heimamenn í síðari hálfleik og staðan hélst jöfn fram á 66. mínútu þegar Eberechi Eze þrumaði boltanum í netið og tryggði Arsenal 2-1 sigur og sæti í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Liverpool náði fram hefndum gegn Wolves Liverpool komst einnig áfram í 8-liða úrslitin í gærkvöld með 3-1 útisigri á Wolves. Liverpool náði þar með að hefna ófaranna frá því á þriðjudagskvöld sl. þegar Wolves vann 2-1 sigur á Liverpool í úrvalsdeildinni með sigurmarki í uppbótartíma. Eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik í gær komst Liverpool í 2-0 á 95 sekúndna kafla í upphafi seinni hálfleiks. Andy Robertson skoraði af 25 metra færi sitt fyrsta mark síðan í september áður en Mohamed Salah jók forystuna í 2-0. Curtis Jones kom Liverpool í 3-0 á 74. mínútu en Hee-Chan Hwang klóraði í bakkann í uppbótartíma og lagaði stöðuna fyrir Wolves. Newcastle tekur á móti Manchester City klukkan 20:00.

Share this article