Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brostin loforð Dags og Samfylkingar

Read Full Article →

Hrafnarnir rákust nýverið á gamla auglýsingu frá Samfylkingunni frá árinu 2006 þar sem, eins og flokknum er von og vísa, var birtur langur loforðalisti ásamt mynd af borgarstjóraefninu Degi B. Eggertssyni. Þar var m.a. lofað að gera leikskóla gjaldfrjálsa, setja Sundabraut alla leið, Öskjuhlíðargöng í forgang og Miklubraut í stokk. Að auki var lofað kaffihúsi í Hljómskálagarðinn og byggingu menntaskemmtigarðs og sjávardýrasafns í Laugardal, svo fátt eitt sé nefnt. Gaman er að sjá hve mörg af þessum loforðum Degi og flokknum hefur tekist að standa við eftir áratugalanga veru í meirihluta í borgarstjórn. Huginn og Muninn er einn af föstu skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article