Innlent | mbl | 13.4.2026 | 18:25 „Áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn“ Bryndís Guðmundsdóttir, Bergþór Ólason og Guðrún Hafsteinsdóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu 16% atkvæða myndu falla dauð Hádegismatur á þúsundkall » Fleiri tengdar fréttir Leikskólaloforð Samfylkingarinnar voru til umræðu á Alþingi í dag, þar sem stjórnarandstaðan kallaði eftir svörum um hvort aðrir stjórnarflokkar hefðu verið upplýstir um fyrirheitin. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, reið fyrst á vaðið í fyrirspurn sinni til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. „Um helgina stóð Samfylkingin ein að kosningaútspili í Kópavogi þar sem lofað var lögfestum rétti til leikskólavistar frá 12 mánaða aldri og nýjum útgjöldum úr ríkissjóði. Í dag er skýrt viðmið í leikskólum að tveir þriðju starfsmanna skuli vera fagmenntaðir. Flest sveitarfélög eru langt undir því marki og ef á að lögfesta leikskólavist 12 mánaða barna og þaðan í frá þá blasir við að það þarf að ráða um 2.400 faglærða kennara, auk rúmlega 600 nýrra stöðugilda. Þar að auki er kostnaður metinn á a.m.k. 15 milljarða og það er áður en húsnæðisþörfin er metin. Mín spurning er því þessi: Var hæstvirtur utanríkisráðherra upplýstur fyrir fram um þessi loforð Samfylkingarinnar? Er hún þeim samþykk og finnst henni það ábyrg fjármálastjórn að lofa útgjöldum af þessari stærðargráðu í miðri kosningabaráttu og nota ríkissjóð eins og kosningasjóð Samfylkingarinnar?“ Frétt af mbl.is Nýtt útspil Samfylkingar „Allir flokkar eru í sinni pólitík“ Í svari sínu sagði Þorgerður sér finnast það gott að flokkar, sama hvaða flokkar það væru, hefðu metnað í leikskólamálum. „Það var kynnt skýrsla fyrir ríkisstjórninni um möguleikana eftir að fæðingarorlofi lýkur, hvað hægt sé að gera, og mér finnst sjálfsagt að við tökum þá umræðu áfram. Allir flokkar eru í sinni pólitík. Ég ber virðingu fyrir öllum þeim flokkum sem bjóða fram til sveitarstjórna af því að það er það frábæra við íslenskt samfélag. Við erum með opnar og skýrar kosningar þar sem áherslur flokka eru mismunandi og ég ber einfaldlega virðingu fyrir því.“ Frétt af mbl.is Lofað upp í ermina á Alþingi Vildi að Þorgerður myndi svara spurningunni Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, steig næstur í ræðustól og minntist sömuleiðis á hinn 15 milljarða kostnaðarramma sem fylgdi loforðunum og spurði hvort málið hefði verið rætt í ríkisstjórninni. „Var þetta rætt í ríkisstjórn og eftir atvikum samþykkt þar og er gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem verður rædd hér í fyrri umræðu á morgun?“ „Ég segi bara að það er sama hvaðan gott kemur. Mér finnst mikilvægt, og það er gott að finna það að við erum að byrja að ræða bæði úti í sveitarstjórnum en líka hér á hinu háa Alþingi, hvernig við leysum það að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og skólagöngu,“ svaraði Þorgerður áður en Bergþór skaut inn í að hún ætti að svara spurningunni sinni. „Ég er að svara. Ekki nema Miðflokkurinn vilji ritstýra öllu sem héðan kemur. Hitt er síðan að við erum auðvitað með eðlilegar og óeðlilegar áherslur í þessu. Það er alveg skýrt að ríkisstjórnin hefur hug á því, m.a. á grunni þeirrar skýrslu sem var kynnt fyrir ríkisstjórninni, að skoða allar þær leiðir, og það er ekkert nýtt, ekki hjá neinum stjórnarflokkanna, til að reyna að brúa bilið í samvinnu og sinki og í samstarfi við sveitarfélögin. Þangað ætlum við að fara. Hvaða áherslur hver og einn stjórnarflokkur setur síðan fram, það er bara í góðu lagi. Það eru sveitarstjórnarkosningar fram undan og við eigum ekkert að vera feimin við það að þær eru að einhverju leyti með mismunandi hætti. Það sem er alveg skýrt aðgerðahópur skilaði tillögum til ríkisstjórnarinnar í desember þar sem hann lagði til tímasetta áætlun um brúun umönnunarbilsins og ég hefði haldið að menn myndu fagna því. Við ætlum einfaldlega að taka þá vinnu áfram og við gerum það í samvinnu við sveitarstjórnarstigið, að sjálfsögðu.“ „Áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn“ Tók Bergþór svari Þorgerðar með þeim hætti að ráðherrann hefði ekki verið upplýstur um hið 15 milljarða króna útspil Samfylkingarinnar. „Þá liggur það fyrir hér með. Eins og hæstvirtur ráðherra sagði: Allir flokkar eru í sinni pólitík. Þetta eru áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn.“ Bryndís herjaði á Ingu Ekki löngu síðar steig Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í ræðustól forseta og setti spurningarmerki við að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefði verið sú sem kynnti útspilið þar sem hún væri sjálf ekki í framboði í sveitarstjórnarkosningum. Þá beindi Bryndís spurningum sínum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, þar sem málaflokkurinn heyrir undir hennar ráðuneyti. „Því vil ég spyrja hæstvirtan mennta- og barnamálaráðherra í fyrsta lagi hvort breytingar á lögum um leikskóla í samræmi við útspil Samfylkingarinnar hafi verið ræddar í ríkisstjórn. Í öðru lagi vil ég spyrja hvort slíkar breytingar séu í vinnslu í ráðuneyti hennar. Í þriðja lagi vil ég spyrja: Hvenær má vænta þess að ráðherra framkvæmi þetta útspil Samfylkingarinnar? Og í fjórða lagi: Hvernig á að fjármagna það? Verður það með skattahækkunum eða niðurskurði?“ Kosningabarátta Samfylkingarinnar ekki á borði Ingu Í svari sínu tók Inga undir fyrri orð Þorgerðar, að rætt hefði verið um hvernig hægt væri að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til börn komast að á leikskóla. „En það hvernig Samfylkingin kýs að haga sinni kosningabaráttu núna í sveitarstjórnarkosningum er ekki inni á mínu borði og við í Flokki fólksins erum með allt aðrar áherslur í sambandi við leikskólamál. Við viljum gjarnan koma með heimagreiðslur til foreldra sem eru á bið eftir leikskólaplássi. Við viljum gjarnan að stór fyrirtæki og aðrir sem treysta sér til þess að koma með úrræði fyrir sína starfsmenn, að það verði greitt fyrir því. Við erum hreinlega ekki einn og sami flokkurinn. En við erum með eina og sömu skýru stefnuna: Við munum gera það sem gera þarf og þurfa þykir til þess að brúa þetta bil. Ég get náttúrlega ekki, hv. þingmaður, á neinum tímapunkti ákveðið það hvernig aðrir flokkar haga sinni kosningabaráttu. Við í Flokki fólksins höfum í rauninni alveg nóg með okkar og erum á fullu að fylgja henni eftir. En takk fyrir þetta, hv. þingmaður, um kostnað og hvaðeina annað sem er, þetta er í umræðunni. En nei, það er ekki gert ráð fyrir 15 milljörðum og ég veit ekkert hvaðan sú tala kemur. Ég veit bara það að hér eru 1.000 börn á bið í borginni. Ég veit bara það að það væri mjög einkennilegt að ætla að lögfesta það núna og ætla að koma því þannig fyrir að við ætluðum að finna þessum 1.000 börnum samastað einn, tveir og þrír. En kosningabarátta er svolítið annað, hv. þingmaður, og hún er til lengri tíma,“ svaraði Inga. „Var forsætisráðherra bara að plata“ Þakkaði Bryndís ráðherranum fyrir hreinskilið svar og sagði það ljóst að Inga og Þorgerður gæfu lítið fyrir kosningaplön Samfylkingarinnar. „Það er þá ljóst að það er ekkert um þessar upphæðir sem búið er að lofa í þetta, af því að ég fann heldur ekkert um það í fjármálaáætlun sem við ræðum hér á morgun. En reyndar segir hæstv. forsætisráðherra að með nýrri löggjöf og sameiginlegri fjármögnun ríkis og sveitarfélaga sem kemur til framkvæmda í skrefum á næstu fjórum árum þá verði þetta gert. Eitthvað hefur verið rætt um að það megi ekki plata. Ég skil ósköp vel að formaður Flokks fólksins og formaður Viðreisnar vilji ekki taka þátt í þessum kosningaloforðum Samfylkingarinnar. En það breytir kannski svolítið stöðunni að þetta var ekki oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi eða í Reykjavík sem fór með þessar línur heldur var það forsætisráðherra Íslands sem situr í ríkisstjórn með hæstv. ráðherra. Þannig að ég spyr aftur: Var forsætisráðherra bara að plata eða er raunverulega verið að vinna að þessum lagabreytingum sem kynntar voru í umræddu útspili Samfylkingarinnar í ráðuneyti hæstv. ráðherra?“ Aldrei að vita nema Inga poppi upp á Austurvelli Tók þá Inga á ný til máls og sagði það af og frá og að Kristrún væri að plata. Þá væri ekkert óeðlilegt við það að formaður flokksins hefði tekið þátt á fundi flokksins í Kópavogi um helgina. „Það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að poppa hérna uppi á Austurvelli til að reyna að aðstoða Flokk fólksins í kosningabaráttunni í Reykjavík. Hver veit, hv. þingmaður. Ég meina, það er ekkert sem segir að við getum ekki hjálpast að og gert það sem þurfa þykir til þess að ná eyrum þeirra sem við viljum ná eyrum hjá. En eins og ég benti á áðan, hv. þingmaður, er stefna Samfylkingarinnar og Flokks fólksins ekki sú sama í borginni hvað lýtur að leikskólamálum og það liggur alveg fyrir að við munum fylgja eftir okkar stefnu og þau sinni. Síðan kemur það bara í ljós þegar við teljum upp úr kjörkössunum hvernig það verður. Við eigum í farsælu samstarfi og ég ætla að vona að við höldum því bara áfram hönd í hönd hér eftir sem hingað til.“ Tengdar fréttir Alþingi Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu 16% atkvæða myndu falla dauð Hádegismatur á þúsundkall » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn“ McIlroy: „Alltaf erfitt að vinna golfmót“ Siglir á einni skrúfu Man. Utd – Leeds kl. 19, bein lýsing Valur – KA kl. 19, bein lýsing Umræðan Það munar um 800 milljónir Einbeittur brotavilji – aðför að íslenska lambinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Vandamálin hverfa ekki bara“ Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fólkið mun á endanum gefast upp Ísland á EM eftir stórsigur Mest lesið Í gær Í vikunni Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Guðmu