Innlent | mbl | 16.4.2026 | 21:50 „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir þekkir tilfellið sem mbl.is fjallaði um í vikunni. Samsett mynd Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir varar við hættulegum og ólöglegum fylliefnameðferðum. Greint var frá því í vikunni að maður þurfti á bráðamóttöku vegna alvarlegra fylgikvilla eftir að fylliefni var sprautað í getnaðarlim hans á snyrtistofu. Hún segist þekkja tilfellið sem rætt er um en tjáir sig ekki um það að öðru leyti. „Þetta er ekki viðurkennd aðferð. Þetta er bara bílskúrsmeðferð í rauninni,“ segir Ragna. Frétt af mbl.is Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Örugglega fleiri sem vantar aðstoð Ragna segir húðlækna ekki sinna slíkum aðgerðum og að hvorki húðlæknar né lýtalæknar framkvæmi fylliefnasprautun í getnaðarlim í þessum tilgangi. Hún segir þetta eina staðfesta tilfelli sem hún þekki til að hafi farið alvarlega úrskeiðis, en útilokar ekki að fleiri mál séu ótilkynnt. „Það eru örugglega fleiri þarna úti í bæ sem þora ekki að leita sér aðstoðar. Þetta kom aðeins upp vegna þess að maðurinn fékk svo alvarlega fylgikvilla að hann þurfti að fara á bráðamóttöku,“ segir Ragna. Frétt af mbl.is Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Falsað eða óþekkt efni frá netinu Ragna segir stórt vandamál felast í því að margar snyrtistofur sem bjóða fylliefnameðferðir flytji sjálfar inn efni án þess að vita nákvæmlega hvað þau innihaldi. „Margar þessara stofa eru að panta fylliefni sjálfar. Það veit enginn nákvæmlega hvað er í þessu.“ Hún segir húðlækna reglulega lenda í vandræðum þegar reynt sé að bregðast við fylgikvillum þar sem ekki liggi fyrir hvaða efni hafi verið notað. „Við vitum oft ekkert hverju hefur verið sprautað í fólk. Þá getur verið erfitt að meðhöndla fylgikvillana,“ segir Ragna. Fá reglulega sjúklinga með fylgikvilla eftir snyrtistofumeðferðir Ragna segir húðlækna reglulega fá til sín sjúklinga með fylgikvilla eftir fylliefna- og sprautumeðferðir sem framkvæmdar hafa verið utan heilbrigðiskerfisins. Hún nefnir sérstaklega fjölgun fylgikvilla tengdum svokölluðum pólýnúklótíðmeðferðum, stundum markaðssettum sem „laxasæðismeðferð“. „Við höfum fengið töluverðan fjölda kvenna til okkar með aukaverkanir eftir slíkar meðferðir. Efnið hefur verið sprautað of grunnt og þær sitja uppi með kúlur í húðinni mánuðum saman.“ Segir lögum ekki framfylgt nægilega Frá 1. desember 2025 hafa gilt reglur um að einungis heilbrigðisstarfsfólk með viðeigandi réttindi megi framkvæma slíkar sprautumeðferðir. Ragna segir þó að framkvæmd laganna sé enn ábótavant. „Við höfum ítrekað sent kvartanir til bæði landlæknis og lögreglu vegna ólöglegra meðferða en oft hefur ekkert gerst.“ Hún segir tilfellið sýna hversu mikilvægt sé að stjórnvöld framfylgi reglunum. „Þetta er víti til varnaðar um hvað getur gerst þegar fólk leitar í ólöglegar og ófaglegar meðferðir,“ segir Ragna. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Trump hafi engan rétt til að hóta heilu þjóðunum Gerðar fyrir svona augnablik Breiðablik og Sindri byrjuðu betur Hætti öllu sukki Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Bændur með harða gagnrýni „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Trump hafi engan rétt til að hóta heilu þjóðunum Gerðar fyrir svona augnablik Breiðablik og Sindri byrjuðu betur Hætti öllu sukki Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lokaðir inni um óákveðinn tíma Vinsælum veitingastöðum lokað Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn