- What: There is uncertainty about the functionality of international internet connections due to technical issues.
- Impact: International communication and data transfer may be affected.
Innlent | Morgunblaðið | 16.4.2026 | 23:30 Óvíst um virkni rofni samband Þjónustan byggist að verulegu leyti á skýjalausnum sem reknar eru erlendis, en unnið er að tengingu varaleiðar um gervihnetti. Ljósmynd/Colourbox Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Ekki er unnt að fullyrða að tölvupóstur haldist virkur án truflana ef samband við útlönd rofnar, þar sem þjónustan byggist að verulegu leyti á skýjalausnum sem reknar eru utan Íslands. Því er utanríkisráðuneytið í samstarfi við Farice að vinna að tengingu varaleiðar um gervihnetti sem nýtast myndi ef algjört rof yrði á gagnaleiðum um sæstrengi. Þetta kemur m.a. fram í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur alþingismanns Sjálfstæðisflokksins um stafrænt fullveldi Íslands, en svar ráðherrans er birt á vef Alþingis. Ráðherrann segir þó í svarinu að afrit gagna séu til á Íslandi í sameiginlegum skýjageirum UMBRU, sem er þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, en slík afrit styðji við endurreisn þjónustunnar. Því sé ljóst að það myndi taka tíma að koma henni að fullu í rekstur á nýjan leik, ef alvarleg röskun yrði. Málið snúist fyrst og fremst um viðbúnað, afritun og endurreisnargetu, ásamt forgangsröðun umferðar um varaleiðir, fremur en að unnt sé að tryggja órofa virkni ef alvarleg röskun yrði á sambandinu. Fram kemur í svari ráðherrans að sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggist að verulegu leyti á þjónustu bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins Microsoft. Þó sé lögð áhersla á það af hálfu utanríkisráðuneytisins að gögn séu hýst og unnin innan Evrópu sem og að mikilvæg gögn séu jafnan afrituð hér á landi. Við mat á lausnum þegar kemur að geymslu stafrænna gagna sé ekki eingöngu horft til þess í hvaða landi viðkomandi fyrirtæki sé skráð heldur fyrst og fremst litið til þess hvar gögn séu geymd, hvar vinnsla fari fram, hvaða aðgangsstýringar og verndarráðstafanir gildi og hvaða samnings- og persónuverndarumgjörð sé fyrir hendi. Þá segir í svarinu að þau gögn sem geymd séu í skýjalausnum erlendra fyrirtækja á vegum ráðuneytisins séu fyrst og fremst gögn sem tengist almennri skrifstofu- og samvinnuvinnslu, svo sem tölvupóstur, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verði til í daglegri starfsemi. Ekki hafi verið sett fram formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í netmiðlun ráðuneytisins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óvíst um virkni rofni samband „Yrði skandall fyrir Stólana“ Auðæfi Gylfa Þórs metin á milljarða Ráðherrann las „vers“ úr Pulp Fiction Auddi og Rakel opna dyrnar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Óvíst um virkni rofni samband „Yrði skandall fyrir Stólana“ Auðæfi Gylfa Þórs metin á milljarða Ráðherrann las „vers“ úr Pulp Fiction Auddi og Rakel opna dyrnar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Allir og óháðir að misskilja? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn