Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 8:01 | Uppfært 8:27 Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Sjálfstæðisflokkurinn mun flytja á 5. hæðina í húsi Sjóvár til skemmri tíma. mbl.is/Kristinn Magnússon Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Aðgerðirnar komi í veg fyrir skuldahækkun heimilanna Virðist hafa stigið yfir mikilvæga línu Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Áslaug Arna aftur á þing í sumar » Fleiri tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn hefur undirritað samning við tryggingarfélagið Sjóvá vegna leigu á 5. hæð í húsi Sjóvár að Kringlunni 5 undir starfsemi flokksins. Tryggvi Másson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins staðfestir þetta í samtali við mbl.is. Um skammtímaleigusamning er að ræða á meðan leit stendur yfir að hentugri stað fyrir starfsemi flokksins til lengri tíma. Tryggvi segir húsnæðið afar hentugt til skemmri tíma og að mikil tækifæri séu fólgin í því fyrir flokkinn að flytja í húsnæði sem fellur vel að starfsemi flokksins. Valhöll afhent um mitt sumar Morgunblaðið sagði frá því í febrúar að Valhöll, sögufrægt húsnæði Sjálfstæðisflokksins, yrði afhent nýjum eiganda um mitt komandi sumar. Þá höfðu Sjálfstæðisflokkurinn og Alva fasteignir gengið frá samningi um kaup hins síðarnefnda á Valhöll. Frétt af mbl.is Valhöll verður afhent í sumar Valhöll var tekin í notkun fyrir hálfri öld og er saga hússins um margt sérstök. Byggingin var reist fyrir sjálfsaflafé, með vinnu sjálfboðaliða og flokksmanna Sjálfstæðisflokksins, og hefur Valhöll fyrir vikið skipað sérstakan sess í sögu flokksins og í hjörtum sjálfstæðismanna. Flokkurinn ákvað í nóvember að auglýsa Valhöll til sölu, en rekstur og viðhald húsnæðisins hefur verið kostnaðarsamt, auk þess sem fyrir liggur að ráðast þarf í umfangsmiklar og dýrar endurbætur til að húsið svari kröfum samtímans. Hugmyndir um hótel í Valhöll Alva fasteignir sendu skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar fyrirspurn seint á síðasta ári sem laut að breytingu á notkun byggingarinnar úr skrifstofubyggingu í hótel, með þeim breytingum á notkun hverrar hæðar byggingarinnar sem því fylgir, og á formi byggingarinnar í formi inndreginnar þakhæðar á þaki núverandi byggingar. Svar skipulagsfulltrúa fól ekki í sér formlega leyfisveitingu, en í því kom fram að deiliskipulagsbreytingu þyrfti til að heimila hótelstarfsemi í byggingunni. Frétt af mbl.is Styrkir rekstrargrundvöll Sjálfstæðisflokksins Skipulagsfulltrúi var neikvæður gagnvart hugmynd um hækkun hússins og lagði ríka áherslu á varðveislugildi Valhallar. Byggingin, sem reist var árið 1975 og hönnuð af Halldóri H. Jónssyni og Garðari Halldórssyni, var í svari fulltrúans sögð einstök að því leyti að hún var sérhönnuð til að hýsa höfuðstöðvar stjórnmálaflokks og telst táknræn bygging á áberandi hornlóð. Skorri Rafn Rafnsson, forstjóri Alva Capital, sagði eftir undirritun kaupsamnings nýja eigendur líta á Valhöll sem einstaka byggingu með ríka menningarlega arfleifð í sögu landsins. Frétt af mbl.is Vilja byggja ofan á Valhöll og breyta í hótel „Það er okkur mikilvægt að standa vörð um húsið og virðingu þess og halda í þá ímynd sem það hefur skapað sér í gegnum tíðina. Við lítum á þetta sem langtímafjárfestingu og það verður spennandi og krefjandi verkefni að endurskapa nýja lífdaga í Valhöll án þess að raska þeim sögulega og menningarlega grunni sem húsið stendur á,“ sagði hann. Endanleg ákvörðun um hvaða starfsemi verður í Valhöll hefur enn ekki verið kynnt en Skorri Rafn hefur sagt að ákvörðunin verði kynnt innan tíðar. Tengdar fréttir Alþingi Aðgerðirnar komi í veg fyrir skuldahækkun heimilanna Virðist hafa stigið yfir mikilvæga línu Framsókn leggur til aðgerðir í efnahagsmálum Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Áslaug Arna aftur á þing í sumar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Runólfur ráðinn forstjóri Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Söngvari grunaður um morð á unglingsstúlku Finnst öllum svo gaman á Ítalíu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lágar álögur og vaxandi samfélag Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Veruleg skerðing á bílastæðum Sigmundur Davíð lét ekki segjast Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Kennarasambandið braut jafnréttislög Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Reyndi að komast undan lögreglunni á hlaupum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Veislan að hefjast - spennandi viðureignir Runólfur ráðinn forstjóri Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Söngvari grunaður um morð á unglingsstúlku Finnst öllum svo gaman á Ítalíu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill meirihluti vill yfirráð auðlinda Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Kennarasambandið braut jafnréttislög Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Óvíst um virkni rofni samband Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Reyndi að komast undan lögreglunni á hlaupum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá