Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Sjálfstæðisflokkurinn leigir húsnæði af Sjóvá Brynjólfur Þór Guðmundsson Sjálfstæðisflokkurinn flytur starfsemi sína tímabundið í húsnæði tryggingafélagsins Sjóvár meðan flokkurinn leitar að framtíðarhúsnæði. Þessu greinir Mbl.is frá í dag og vísar í Tryggva Másson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn seldi Valhöll, heimkynni sín til hálfrar aldar, í febrúar. Alva Capital keypti húsið og fær það afhent um mitt sumar. Húsnæði Sjóvár í Kringlunni í Reykjavík. Þórgunnur Oddsdóttir Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Telur lækkun bensínverðs ekki duga til að minnka verðbólgu Aðalhagfræðingur Landsbankans telur tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar ekki duga gegn verðbólgu. Bankinn spáir að íbúðaverð lækki að raunvirði á næstunni. Fyrir 46 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Tveir af hverjum þremur vilja leiguþak Yfirgnæfandi stuðningur er við leiguþak í öllum aldursflokkum og óháð búsetu, menntun og tekjum. Mikill munur er á afstöðu fólks eftir stjórnmálaskoðunum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dæmdur fyrir líkamsárás gegn pilti sem gerði dyraat Karlmaður sem hljóp á eftir dreng eftir dyraat og tók hann hálstaki fékk skilorðsbundinn fangelsisdóm. Drengurinn var þrettán ára en maðurinn á sextugsaldri. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Menntamál Reynsla barna af heimavist afar misjöfn: „Mig langaði bara alltaf heim” Um árabil þurftu mörg íslensk sveitabörn að fara ung að heiman til að stunda nám í heimavistarskólum. Sum voru haldin mikilli heimþrá og grétu sig í svefn á hverju kvöldi, en önnur hugsa með hlýju til þessara ára. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Boða kennslu í nýju húsnæði eftir tvö ár Mennta- og barnamálaráðuneytið segir að uppbygging við verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Suðurnesja geti hafist í janúar og kennsla í húsinu haustið 2028. Kennarar fordæma aðgerðaleysi og skólameistarinn hefur sagt starfi sínu lausu. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópuglugginn Bætt samskipti við Brussel eitt af brýnustu verkefnum Magyars Eitt af fyrstu verkefnum Peters Magyars, leiðtoga Tisza flokksins og sigurvegara í þingkosningunum á sunnudaginn, er að losa um milljarða evra styrki sem Evrópusambandið hefur haldið til baka til að þrýsta á um umbætur í Ungverjalandi undanfarin ár. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Smá vætutíð en léttir svo til Útlit er fyrir rigningu eða skúraveður á norðan- og vestanverðu landinu framan af degi. Síðar léttir til þar en í kvöld fer að rigna á Austfjörðum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Tónlistarmaðurinn d4vd grunaður um að hafa myrt 14 ára stúlku Markús Þ. Þórhallsson Bandaríski tónlistarmaðurinn d4vd, eða David Anthony Burke, er í haldi lögreglu í Los Angeles grunaður um að hafa myrt 14 ára stúlku sem fannst örend í skotti Tesla-bifreiðar í hans eigu síðasta haust. David Anthony Burke eða d4vd á sviði Montreux jasshátíðarinnar í Sviss árið 2024. EPA / CYRIL ZINGARO Bíllinn stóð á svæði fyrirtækis sem fjarlægir yfirgefna eða bilaða bíla. Lík stúlkunnar, Celeste Hernandez, var illa farið og réttarmeinafræðingar sögðu það hafa legið talsverðan tíma í bílnum áður en það fannst. Í yfirlýsingu lögreglu segir að Burke verði í haldi yfir helgina meðan saksóknari metur hvort rétt sé að ákæra hann fyrir morðið. Heilt ár er síðan Celeste Hernandez sást seinast á lífi en þá var tilkynnt um hvarf hennar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ökumaður kærður fyrir að troðfylla bíl sinn af fólki — einn í skottinu Markús Þ. Þórhallsson Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumann í gærkvöld eða nótt fyrir að bjóða of mörgum far, meðal annars kom einn sér fyrir í skottinu á bílnum. Lögreglubíll í Austurstræti. Mynd úr safni. RÚV / Vignir Már Eiðsson Annar ökumaður hlaut kæru fyrir að aka á 119 kílómetra hraða í Kópavogi þar sem leyfður hámarkshraði er áttatíu. Hann reyndi en tókst ekki að komast undan á hlaupum að því er segir í dagbók lögreglu. Fleiri bílstjóra bíður sekt fyrir hraðakstur í vorinu og akstur undir áhrifum fíkniefna ásamt því sem einn farþegi var kærður fyrir hnífaburð. Auk þessa rannsakar lögreglan innbrot í heimahús í Árbæjarhverfi þar sem munum var stolið. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Kjarnaboranir Eyjaganga hefjast um helgina Kjarnaboranir hefjast á vegum Eyjaganga ehf. í Vestmannaeyjum um helgina sem eru upphafið á umfangsmiklum rannsóknum á möguleikanum á vegtengingu milli lands og Eyja. Niðurstaðna mun að vænta fyrir árslok og þá verður framhaldið ákveðið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Hermaður sakaður um stríðsglæpi í Afganistan laus gegn tryggingu Ástralskur orðum prýddur hermaður sakaður um stríðsglæpi í Afganistan fær að ganga laus gegn tryggingu meðan mál hans fer gegnum réttarkerfið. Málaferli gætu tekið mörg ár. Hans gæti beðið ævilöng fangavist. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Grunaður forsprakki hryðjuverkaárásar í París fyrir 44 árum framseldur Palestínsk yfirvöld hafa framselt Frökkum sjötugan karlmann grunaðan um að vera einn höfuðpaura hryðjuverkaárásar á gyðinglegt veitingahús í París árið 1982. Maðurinn var handtekinn í september, skömmu áður en Frakkar viðurkenndu Palestínu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Trump segir Leó páfa þurfa að skilja að veröldin geti verið vondur staður Bandaríkjaforseti heldur áfram að rökræða óbeint við páfa þótt tónninn hafi verið mildari í gær. Páfi yrði að átta sig á illsku heimsins sem að mati forsetans birtist meðal annars í drápum Íransstjórnar á tugum þúsunda mótmælenda. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Hlutabréf Netflix féllu í verðu þrátt fyrir hagnað og góðar tekjur Verð á hlutafé streymisveitunnar Netflix lækkaði talsvert í gær þrátt fyrir ágætan hagnað og meiri tekjur en búist hafði verið við. Annar stofnenda fyrirtækisins og stjórnarformaður þess stígur til hliðar í júní. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Líbanir saka Ísrael um að brjóta gegn ákvæðum vopnahléssamkomulagsins Markús Þ. Þórhallsson Hernaðaryfirvöld í Líbanon segja Ísraelsher í nótt hafa haft uppi hernaðartilburði og þannig brotið gegn ákvæðum vopnahlésins sem tók gildi á miðnætti að staðartíma. Reykur stígur til himins eftir loftárás Ísraelshers á þorpið Bint Jbeil í Suður-Líbanon í gær. EPA / ATEF SAFADI Her Líbanons hvatti í færslu á X íbúa í sunnanverðu landinu að hafa varann á vegna athæfis Ísraelshers eftir að vopnahléð komst á. Ísrael dró herlið sitt ekki til baka. Líbanska ríkisfréttastöðin NNA segir Ísraelsher hafa gert stórskotaliðsárásir í landinu sunnanverðu. Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki enn tjáð sig um málið. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fjármálaráðherrar G7 segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins Markús Þ. Þórhallsson Fjármálaráðherrar G7-ríkjanna segja brýnt að draga úr efnahagslegum afleiðingum stríðsins í Mið-Austurlöndum. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur valdið verðhækkunum og jafnvel skorti á ýmsum vörum. EPA / TOLGA AKMEN Ráðherrarnir áréttuðu jafnframt mikilvægi þess að varanlegur friður komist á í heimshlutanum. Styrjöldin var eitt þriggja meginumræðuefna fundar ráðherranna og seðlabankastjóra ríkjanna sem hittust á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington. Jafnframt ræddu þeir leiðir til að tryggja birgðakeðjur fyrir mikilvæg jarðefni og frekari stuðning við Úkraínu. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Danska konan fær sérmeðferð hjá Danska ríkisútvarpinu Sjónvarpsþættirnir Danska konan fá undanþágu frá vanalegu fyrirkomulagi DRTV svo áhorfendur geti notið þáttanna betur. Forstjóri danska kvikmyndasjóðsins FilmFyn líkti fyrirkomulaginu við árás á áhorfendur. 16. apríl 2026 kl. 22:59ERLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Heimskreppa vofir yfir ef stríðinu gegn Íran linnir ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir minnkandi hagvexti og jafnvel heimskreppu ef stríðið gegn Íran dregst á langinn og olíuverð verður áfram í hæstu hæðum. Skilvirkasta leiðin til að koma í veg fyrir þetta er að semja um frið og það sem fyrst. 16. apríl 2026 kl. 22:18INNLENDAR FRÉTTIR Menntamál „Formleg umræða hefur ekki farið fram“ Formaður Félags grunnskólakennara segir enga formlega umræðu hafa farið fram sem snúi að breytingu á einkunnagjöf í grunnskólum. Barna- og menntamálaráðherra boðaði breytinguna á fundi Kennarasambands Íslands í gær. 16. apríl 2026 kl. 22:13ERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Tæpur helmingur allrar kampavínsuppskeru í bráðri hættu Vorið kom snemma í Frakklandi og eru vínberjaþrúgur í héraðinu Champagne því ekki eins harðgerðar og alla jafna á þessum árstíma. Kalskemmdir ógna stórum hluta allrar kampavínsuppskeru vegna frosts síðustu daga. 16. apríl 2026 kl. 21:44INNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Nýtt jarðhitasvæði gæti nýst til bæði húshitunar og raforkuframleiðslu Tilraunaboranir á nýju jarðhitasvæði á Hellisheiði sýna allt að 270 gráðu hita. Vonir standa til þess að það geti nýst bæði til húshitunar og raforkuframleiðslu. 16. apríl 2026 kl. 21:30ÍÞRÓTTIR Fótbolti Mark Alberts dugði ekki til Anna Sigrún Davíðsdóttir Fiorentina tók á móti Crystal Palace í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Palace fór með gott veganesti inn í leikinn því liðið vann 3-0 í fyrri leik liðanna og það reyndist dýrmætt. Ismaïla Sarr kom Palace yfir á 17. mínútu, 1-0. Það kom svo í hlut Alberts Guðmundssonar að jafna metin fyrir Fiorentina á 30. mínútu. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Alberts og félaga sem dugði þó ekki til að komast inn í undanúrslitn. Palace sigraði einvígið 4-2 og fer því áfram í næstu umferð. Albert fagnar markinu. AP/LaPresse / Massimo Paolone 16. apríl 2026 kl. 21:14ÍÞRÓTTIR Körfubolti Keflavík í undanúrslit eftir mikla spennu í oddaleik KR og Keflavík mættust í oddaleik í 8-liða úrslitum úrslitakeppni kvenna í körfubolta. Þar var allt í járnum og einu