Innlent | Morgunblaðið | 17.4.2026 | 22:15 Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Stefán Einar Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Meirihlutinn fallinn Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Húsfyllir í Vestmannaeyjum „Þetta var bara mjög tæknilegt“ Veruleg skerðing á bílastæðum » Fleiri tengdar fréttir Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulagsmál og þjónusta við íbúa voru meðal þeirra mála sem hæst bar á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Vestmannaeyjum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna. Fulltrúar þriggja framboða, þau Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir, jafnan kölluð Dísa, fyrir Eyjalistann, kynntu áherslur sínar og svöruðu spurningum fundargesta. Fundarstjórar voru Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson og var umræða bæði lífleg og hvöss á köflum, ekki síst þegar rætt var um samgöngur, útboðsmál og ástand innviða í Eyjum. Mættu yfir 100 manns á fundinn sem haldinn var í Höllinni. Ábyrg fjármálastjórn Sæunn Magnúsdóttir lagði í upphafsávarpi sínu áherslu á að Miðflokkurinn vildi byggja á „skynsemi, skynsemi númer eitt, tvö og þrjú“ og sagði að skort hefði á skýra framtíðarsýn í stjórnun bæjarins undanfarin ár. Hún gagnrýndi að farið hefði verið af stað í framkvæmdir án nægilegs undirbúnings og samráðs. „Óskipulag kostar peninga,“ sagði hún og nefndi meðal annars framkvæmdir við íþróttamannvirki og hálfkláruð verkefni sem dæmi um kostnaðarsama stefnu. Þá lagði hún einnig áherslu á að bæta samgöngur, styrkja atvinnumál og sækja fleiri opinber verkefni til Eyja. Traust og grunnþjónusta Eyþór Harðarson sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja byggja áfram á öruggri grunnþjónustu við íbúa, þar á meðal í leikskólum, grunnskólum og félagsþjónustu. Hann lagði jafnframt áherslu á hagsmunagæslu gagnvart ríkinu vegna samgangna og hafnarmála. „Stærsta áskorunin í Eyjum í dag er lagning á nýrri vatnsleiðslu,“ sagði Eyþór og bætti við að framkvæmdin væri ekki aðeins fjárhagslegt stórmál heldur grundvallaratriði fyrir búsetuöryggi og atvinnulíf í Eyjum. Hann sagði jafnframt að Sjálfstæðisflokkurinn byði upp á „traust í stjórnun bæjarins“. Spurður um stöðu Sjálfstæðisflokksins eftir innri átök sagði hann flokkinn vera „mjög stjórntækan og í mjög góðu standi í Vestmannaeyjum“, þótt hann viðurkenndi að ekki væru allir sammála um val á bæjarstjóraefni. Fólk og fjölskyldur í forgrunni Arndís María Kjartansdóttir oddviti Eyjalistans lagði sérstaka áherslu á fjölskyldur, börn og ungmenni. Hún sagði að þótt mikið hefði áunnist í tíð Eyjalistans í meirihluta væri enn fjölmargt ógert. „Við erum svolítið meira að pæla í fjölskyldunum, ekki bara í fyrirtækjum heldur líka fólkinu sem býr hérna,“ sagði hún. Dísa nefndi sérstaklega þörfina á nýjum leikskóla, bættri íþróttaaðstöðu, viðhaldi á fasteignum bæjarins og sterkari stuðningi við unglinga og frístundastarf. Hún sagði jafnframt að stórskipahöfnin væri ekki aðeins atvinnumál heldur einnig almannavarnamál fyrir Eyjar og kallaði eftir meiri framtíðarsýn í uppbyggingu samfélagsins. Samgöngur stærsta hitamálið Samgöngumálin reyndust eitt stærsta umræðuefni kvöldsins. Miklar áhyggjur komu fram vegna Landeyjahafnar, óvissu í siglingum Herjólfs og takmarkaðra flugsamgangna. Frambjóðendur voru sammála um að staðan væri óviðunandi og að þrýsta þyrfti fastar á ríkið. Eyþór sagði það „grátlegt hvað hefur tekið langan tíma að klára höfnina“ og gagnrýndi vinnubrögð Vegagerðarinnar harðlega. Þá benti Sæunn á að óboðlegt væri að flugbókanir opnuðust aðeins með skömmum fyrirvara og að tryggja þyrfti meiri tíðni ferða. Hún sagði jafnframt að Norlandair hefði lýst sig reiðubúið til að nota stærri flugvél ef ferðum yrði fjölgað. Arndís tók í sama streng. „Mér finnst enginn skilningur hjá ríkisstjórninni gagnvart þessum vanda,“ sagði hún. Vatnsleiðslan stórmál Ný vatnsleiðsla til Eyja, NSL-4, var annað stórmál fundarins. Frambjóðendur voru sammála um að verkefnið væri algerlega nauðsynlegt og ríkið yrði að koma sterkar að fjármögnun þess. Kostnaður er sagður nálgast þrjá milljarða króna, þar af ber bærinn sjálfur umtalsverðan hlut. Eyþór sagði að berjast yrði fyrir því að leiðslan yrði skilgreind sem almannavarnamál. Sæunn tók undir það og benti á að þingmenn Miðflokksins hefðu þegar talað fyrir ríkisstuðningi við verkefnið. Dísa sagðist einnig telja eðlilegt að leita sem mest til ríkisins í málinu. Skipulag, lóðir og dagleg þjónusta Þá var einnig tekist á um skipulagsmál, lóðaframboð, fasteignagjöld, sorphirðu og matvöruverð. Gagnrýnt var að ekki hefði gengið nógu hratt að útbúa nýjar lóðir og að skortur væri bæði á íbúðalóðum og iðnaðarlóðum. Sæunn sagði að skipulagsleysi hefði einkennt þróunina og kallaði eftir skýrari sýn. Dísa, sem starfar sem fasteignasali, sagði mikla vöntun vera á lóðum í bænum. Eyþór var hins vegar á því að staðan væri ekki eins dökk og af væri látið og benti á að mikið hefði verið byggt undanfarin ár. Á fundinum var einnig rætt um há fasteignagjöld og frambjóðendur lýstu allir vilja til að halda raunhækkunum í skefjum. Þá komu fram kvartanir vegna sorphirðugjalda og takmarkaðs vöruúrvals í verslunum bæjarins. Stefán Einar, Eyþór Harðarson, Arndís María Kjartansdóttir, Sæunn Magnúsdóttir og Andrés. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Meirihlutinn fallinn Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Húsfyllir í Vestmannaeyjum „Þetta var bara mjög tæknilegt“ Veruleg skerðing á bílastæðum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Erum með stórkostlega stuðningsmenn“ Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Andri Rúnar hetjan í Garðabæ Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Ægileg dramatík og læti út af engu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ „Erum ennþá í pólitík,“ segir Kristrún Agabrot flugstjórans ólíðandi Sigmundur Davíð lét ekki segjast Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina Meirihlutinn fallinn „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » „Erum með stórkostlega stuðningsmenn“ Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Andri Rúnar hetjan í Garðabæ Vilja að brugðist verði við óboðlegu ástandi Ægileg dramatík og læti út af engu Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Veruleg skerðing á bílastæðum Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ „Við eigum hérna frábært hús á frábærum stað og sagan er djúp“ Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina Meirihlutinn fallinn „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá