Innlent | Morgunblaðið | 18.4.2026 | 7:50 Uppgangur samfélags í þjóðbraut Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Meirihlutinn fallinn Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Húsfyllir í Vestmannaeyjum „Þetta var bara mjög tæknilegt“ » Fleiri tengdar fréttir Rangárþing eystra stendur á miklum tímamótum. Sveitarfélagið vex hratt, ferðaþjónustan sækir fram af krafti og fjárfestingar eru miklar, en um leið kalla vöxturinn og breytingarnar á nýjar áherslur í skipulagi, innviðauppbyggingu og rekstri. Þetta má augljóslega greina af samtali við sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi eystra, þar sem rætt er um stöðu mála og verkefnin fram undan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sömu þrjú og síðast Þrjú framboð bjóða fram í kosningunum í vor, þau hin sömu og buðu fram árið 2022. Það eru Sjálfstæðisflokkur undir forystu Antons Kára Halldórssonar, Framsóknarflokkur undir forsæti Rafns Bergssonar og N-listinn sem Tómas Birgir Magnússon leiðir. Síðasta kjörtímabilið hafa Sjálfstæðismenn og N-listinn myndað meirihluta og hefur Tómas Birgir verið oddviti og Anton Kári sveitarstjóri. Settust þeir þrír niður með blaðamanni Morgunblaðsins á Hótel Rangá og fóru yfir stöðu mála. Er viðtalið í heild sinni aðgengilegt á mbl.is og Spotify. Helmingur á Hvolsvelli Sveitarfélagið varð til árið 2002 við sameiningu sex hreppa og nær frá Eystri-Rangá í vestri að Jökulsá á Sólheimasandi í austri. Íbúar eru nú tæplega 2.300 og hefur þeim fjölgað um 20% á kjörtímabilinu, einkum vegna fjölgunar erlendra íbúa sem tengjast uppgangi í ferðaþjónustu. Um helmingur íbúanna býr á Hvolsvelli en hinn í dreifbýli, sem skapar sérstakar áskoranir í þjónustu, skólaakstri og sorphirðu. Sækir fram af krafti Ferðaþjónustan er nú orðin ein helsta undirstaða atvinnulífsins, samhliða landbúnaði. Hótel á svæðinu eru sögð nánast fullnýtt allt árið og nýtingarhlutfall sumra þeirra er með því hæsta sem þekkist. Fjárfestingar í greininni eru miklar og ljóst að eftirspurn eftir gistingu og þjónustu heldur áfram að aukast. Samhliða þessu vex þó umræða meðal íbúa um hversu langt eigi að ganga í frekari uppbyggingu og hvernig tryggja megi jafnvægi milli ferðaþjónustu og hefðbundins landbúnaðar. Gjaldtaka við Skógafoss er liður í þessari þróun og er nú farin að skila sveitarfélaginu verulegum tekjum. Hún reynist minna umdeild en margir óttast og er litið á hana sem nauðsynlegan tekjustofn til að fjármagna uppbyggingu á staðnum, svo sem bílastæði, salernisaðstöðu, göngustíga og önnur mannvirki sem þurfa að taka við miklum ferðamannastraumi. Segir Tómas Birgir að þegar fram í sækir muni sveitarfélagið sennilega hafa hundraða milljóna króna tekjur af bílastæðinu á ári hverju. Anton Kári segir að gjaldtökunni hafi verið afar vel tekið og að greiðsluvilji sé til staðar svo lengi sem þjónustan sé til staðar. „Við erum ekki með neina stórútgerð, við erum ekki með Skinney-Þinganes eða eitthvert stórt fyrirtæki á bak við okkur. Við erum ekki með orkumannvirki í okkar sveitarfélagi, ekki stóra tekjustofna eða stóra aðila á bak við okkur sem hafa verið að byggja fótboltahallir út um allt. Af hverju er ekki kominn tími til að okkar íbúar njóti góðs af okkar stóriðju sem er ferðaþjónustan?“ bætir sveitarstjórinn við. Sér sveitarfélagið tækifæri þegar kemur að málefnum Skóga einnig. Hins vegar eiga fleiri sveitarfélög tilkall til jarðarinnar þar sem þeim var ánafnaður hlutur í henni sem hluti af erfðafé þáverandi eigenda. Eru oddvitaframbjóðendurnir þrír sammála um að finna megi lausn á því máli. Skipulagsmálin reyna á Skipulagsmálin eru sögð ein stærsta áskorun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Árekstrar verða þegar land sem hentar vel til landbúnaðar er tekið undir hótel og aðra ferðaþjónustu. Á sama tíma bendir Anton Kári á að Rangárþing eystra státi af miklu magni af úrvalsræktunarlandi og að aðeins lítill hluti þess sé nýttur í dag, sennilega ekki nema 5% og því séu næg tækifæri til þess að láta ólíkar atvinnugreinar vaxa og dafna í sátt og samlyndi. Verkefnið felst því ekki síst í að finna skynsamlegt jafnvægi milli atvinnugreinanna og byggja upp í sátt við samfélagið. Sumir sjá mikil tækifæri í áframhaldandi uppbyggingu, á meðan aðrir óttast að hraðinn verði of mikill og að sérkenni sveitarfélagsins breytist of ört. Segist Rafn til að mynda heyra meira um það nú en áður að fólk telji nóg komið þegar uppgangur ferðaþjónustunnar er annars vegar. Stór verkefni fram undan Rekstur sveitarfélagsins er traustur og hefur verið það um árabil. Á síðustu árum hefur sveitarfélagið ráðist í stór verkefni, þar á meðal nýjan leikskóla fyrir allt að 180 börn, gatnagerð á Hvolsvelli og uppbyggingu bílastæða við Skógafoss. Eru í leikskólanum nú reknar átta deildir og má fjölga þeim um tvær án nokkurra vandkvæða. Fram undan eru jafnframt stór verkefni á borð við stækkun grunnskólans, frekari uppbyggingu íþrótta- og æskulýðsmannvirkja og endurbætur á fráveitu og öðrum grunninnviðum. Þá vilja framboðin einnig bregðast við með lægri álögum þar sem svigrúm skapast, ekki síst gagnvart ungu fólki og atvinnustarfsemi. Í sókn fremur en vörn Þrátt fyrir ólíkar áherslur í einstökum málum er tónninn í sveitarfélaginu jákvæður. Rangárþing eystra er í sókn fremur en vörn, en verkefnið næstu ár verður að halda utan um vöxtinn af ábyrgð og tryggja að samfélagið njóti ávinningsins alls, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Samtölin úr Rangárþingi eystra í hljóði og mynd á mbl.is og Spotify. Næst: Rangárþing ytra Samtal Rafn Bergsson frá Framsóknarflokki, Anton Kári Halldórsson frá Sjálfstæðisflokki og Tómas Birgir Magnússon frá N-listanum settust niður á Hótel Rangá og ræddu kosningarnar fram undan í Rangárþingi eystra. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Samgöngur og vatnsöryggi á oddinum Meirihlutinn fallinn Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Húsfyllir í Vestmannaeyjum „Þetta var bara mjög tæknilegt“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Uppgangur samfélags í þjóðbraut Réðst á leigubílstjóra Allt að 10 stiga hiti Vettvangur: Þrjú lokuð hlið Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið komið fram á fölskum forsendum Uppgangur samfélags í þjóðbraut Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Veruleg skerðing á bílastæðum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu X26: Húsfyllir og heitar umræður Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Komu saman og rifjuðu upp ferðina um Hormússund Uppgangur samfélags í þjóðbraut Réðst á leigubílstjóra Allt að 10 stiga hiti Vettvangur: Þrjú lokuð hlið Umræðan Tökum ábyrgð hvert á öðru Kynlegir kvistir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Skólalóðin drullusvað og óboðleg nemendum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefja gjaldtöku við Egilshöll Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „Dónaleg“ framkoma gagnvart Vestmannaeyingum Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu X26: Húsfyllir og heitar umræður Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Tvö gripin með rúm 30 kíló af amfetamíni „Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Meirihlutinn fallinn Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráð