Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Nýta þarf orkuna á svæðinu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 20.4.2026 | 10:55 Nýta þarf orkuna á svæðinu Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Rafmagnað Hin umrædda Hvammsvirkjun er í landi Rangárþings ytra og hefur sveitarfélagið þrívegis gefið út framkvæmdaleyfi vegna áforma Landsvirkjunar um að koma virkjuninni á koppinn. Tvívegis hefur það verið fellt úr gildi en nú standa vonir til að leyfið standi og að það styttist í að orkufyrirtækið geti fyrir alvöru hafist handa við að afla meiri orku úr Þjórsá. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Pétur vill rauða dregilinn út Spurt um bæjarstjóraefni og framkvæmdir í Eyjum Sjálfkjörið á fjórum stöðum á landinu » Fleiri tengdar fréttir Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landsveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins ríflega tvö þúsund. Mátti engu muna Kosningarnar lofa spennu, enda munaði aðeins ellefu atkvæðum á listunum tveimur árið 2022. Á-listinn fékk þá 493 atkvæði og fjóra fulltrúa, en D-listi Sjálfstæðisflokksins 482 atkvæði og þrjá fulltrúa. Sömu oddvitar leiða listana nú og þá, þeir Eggert Valur Guðmundsson fyrir Á-lista og Ingvar Pétur Guðbjörnsson fyrir D-lista. Stærsta viðfangsefni kjörtímabilsins eru framkvæmdir við skólamannvirki á Hellu. Eggert segir sveitarfélagið hafa staðið í „gríðarmiklum framkvæmdum“ og að um sé að ræða „þær mestu í raun og veru síðan sveitarfélagið varð til“. Þar nefnir hann stækkun grunnskólans og byggingu nýs leikskóla. Spurður um umfangið segir hann kostnaðinn vera „fjóra milljarða, einhvers staðar þar í kring“. Ingvar tekur undir mikilvægi framkvæmdanna og segir „fulla samstöðu“ hafa ríkt um þær í sveitarstjórn. Jafnframt bendir hann á að slíkar fjárfestingar þrengi svigrúm til annarra verkefna. Eggert segir þó að vel hafi tekist til: „Okkur hefur gengið vel að halda áætlunum og kostnaðaráætlunum,“ þótt framkvæmdir hafi tafist lítillega. Frétt af mbl.is X26: Tvísýn barátta í Rangárþingi ytra Áherslumunur framboðanna Oddvitarnir eru sammála um margt, en Ingvar Pétur kallar eftir meira aðhaldi og skýrari forgangsröðun í rekstri. Hann segir tekjuflæði hafa verið gott, meðal annars vegna hækkandi útsvarstekna, en bætir við að „það mætti auðvitað vera meira aðhald stundum“. Hann gagnrýnir sérstaklega að fjármunum hafi ekki verið ráðstafað í þjónustu við heilabilaða og nefnir að „ekki hafi tekist að forgangsraða nokkrum tugum, 20-30 milljónum á ári, í betri þjónustu við þá“. Orka, uppbygging og óvissa Á-listinn vill hins vegar halda áfram á sömu braut og verið hefur. Eggert segir að sveitarfélagið hafi skilað „mesta rekstrarhagnaði eftir hvert ár á þessu kjörtímabili bara frá því sveitarfélagið varð til“ og að markmiðið sé að klára þau verkefni sem þegar eru hafin og styðja áfram við atvinnuuppbyggingu. Orkumálin hafa verið fyrirferðarmikil í Rangárþingi ytra, ekki síst Hvammsvirkjun og vindlundurinn við Haf. Eggert segir sveitarstjórnina „langþreytta sérstaklega á öllu veseni í kringum Hvammsvirkjun“ og bendir á að málið hafi kostað sveitarfélagið „milljónatugi“. Klasa þarf á svæðið Samt telja báðir oddvitar að orkuverkefnin geti skipt sveitarfélagið miklu máli. Ingvar segir að „hvert einasta starf í svona sveitarfélagi skiptir máli“, en Eggert leggur áherslu á að jákvæður andi ríki almennt gagnvart virkjunum á svæðinu. Margir sem búi á svæðinu hafi notið góðs af uppbyggingu orkumannvirkja fyrr á tíð og skilji vel hversu mikil áhrifin geti verið af umsvifum af þessu tagi. Eggert Valur Guðmundsson oddviti Á-lista og Ingvar Pétur Guðbjörnsson oddvitaframbjóðandi D-lista. Morgunblaðið/Kristófer Liljar Ingvar Pétur segir umhugsunarefni að þrátt fyrir hina miklu orkuframleiðslu sem eigi sér stað í héraðinu þá sé orkan að mestu leyti flutt á brott og að engir stórnotendur hafi komið sér fyrir á svæðinu. Því þurfi að breyta og vill hann beita sér fyrir því að atvinnuþróunarfélag eða klasi verði stofnaður í anda þess sem gert hafi verið og gefist vel í Ölfusi. Kalla þurfi fólk með þekkingu til þess verks að laða öflug fyrirtæki inn á svæðið. Eggert tekur í sama streng og segir að tækifæri séu að opnast með flutningsmannvirkjum raforku sem tengi orkuframleiðsluna betur út í Eyjar og að þau liggi um svæðið, sem opni ýmsa möguleika í þessum efnum. Eru Evrópumál á dagskrá? Líkt og í fyrri viðtölum eru oddvitaframbjóðendurnir spurðir út í afstöðu sína til Evrópusambandsins enda ljóst að í miklu landbúnaðarhéraði eins og Rangárþingi ytra myndi aðild að ESB hafa talsverð áhrif. Ingvar Pétur er ómyrkur í máli þegar hann segist mótfallinn inngöngu. Það þjóni ekki hagsmunum Íslands að ganga í sambandið. Eggert segist á sama tíma ekki draga dul á að hann sé Evrópusinni, minnir á að hann hafi áður verið oddviti Samfylkingarinnar í Árborg. Hann vill fá aðildarviðræður til þess að leiða fram hversu góðan samning Ísland geti fengið í viðræðum við hina háu herra í Brussel. Þótt áherslumunur sé til staðar milli framboðanna tveggja virðist djúpt á beinum átökum milli oddvitaframbjóðendanna. Líkt og 2022 gæti niðurstaðan í kosningunum enn á ný ráðist á örfáum atkvæðum og augu áhugafólks um stjórnmál munu án nokkurs vafa hvíla á tölunum sem koma upp úr kjörkössunum á Hellu þann 16. maí. Lesendur geta spurt frambjóðendur Bent er á að lesendum Morgunblaðsins og mbl.is gefst nú kostur á að beina spurningum beint til oddvita og/eða framboða í komandi sveitarstjórnarkosningum. Á kosningavef okkar má nú nálgast spurningabox þar sem hægt er að senda inn spurningar. Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl.is munu velja nokkrar spurningarnar og bera undir frambjóðendur á kosningaferðalagi sínu vítt og breitt um landið. Markmiðið er að efla umræðu og auka aðgengi kjósenda að upplýsingum um stefnu og áherslur framboðanna ásamt því að stuðla að lýðræðislegri þátttöku kjósenda um allt land. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Rafmagnað Hin umrædda Hvammsvirkjun er í landi Rangárþings ytra og hefur sveitarfélagið þrívegis gefið út framkvæmdaleyfi vegna áforma Landsvirkjunar um að koma virkjuninni á koppinn. Tvívegis hefur það verið fellt úr gildi en nú standa vonir til að leyfið standi og að það styttist í að orkufyrirtækið geti fyrir alvöru hafist handa við að afla meiri orku úr Þjórsá. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Pétur vill rauða dregilinn út Spurt um bæjarstjóraefni og framkvæmdir í Eyjum Sjálfkjörið á fjórum stöðum á landinu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Stjarna Liverpool: Ekki í mínum höndum Drilling begins for proposed tunnel to the Westman Islands Nýta þarf orkuna á svæðinu Segjast ekki áforma friðarviðræður við Bandaríkin 44 ára og á von á barni með nýja kærastanum Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óska eftir launalausum liðsauka Sjávarútvegsstjórinn albúinn til viðræðna Mannskæðasta skotárás í Bandaríkjunum í tvö ár Loka Hormússundi aftur Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Hitinn gæti náð 14 stigum Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera 12 mánaða börn fá leikskólapláss í haust Borgarlínan gengur að Suðurlandsbrautinni dauðri Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » Stjarna Liverpool: Ekki í mínum höndum Drilling begins for proposed tunnel to the Westman Islands Nýta þarf orkuna á svæðinu Segjast ekki áforma friðarviðræður við Bandaríkin 44 ára og á von á barni með nýja kærastanum Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Var umsóknin um aðild að ESB í samræmi við umboð Alþingis? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu 300 ferðir á spítalann Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Mannskæðasta skotárás í Bandaríkjunum í tvö ár Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Óska eftir launalausum liðsauka Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Hitinn gæti náð 14 stigum Skýring

Share this article